Myndvinnsla
með FrontPage
Vefur án mynda þykir frekar flatur og lítið
freistandi. Þess ber þó að gæta að
hafa ekki of margar myndir á síðum og sérstaklega
verður að gæta þess að þær
séu ekki of stórar. Ef myndirnar eru mjög stórar
verður síðan þung í flutningi og notendur
nenna ekki að bíða eftir henni á skjánum.
Best er að staðsetja myndir innan í töflu.
Annars geta þær átt það til að
fara á flakk á vefsíðunni. Þær
myndir sem henta best á vefsíður hafa endinguna
JPG eða GIF.
|
 |
Til
þess að sækja myndir sem þú hefur þegar
vistað í möppu í tölvunni þinni
velur þú flýtihnappinn neðst til hægri,
en til þess að fara út á internetið velur
þú hnappinn vinstra megin við hann. |
| Þegar
þú vistar vefsíðu með myndum færðu
upp þennan glugga. Gættu þess að vista myndirnar
í images möppunni. Ef þú sérð
hana ekki, velur þú Change Folder hnappinn og þá
getur þú valið rétta möppu. Mundu að
hafa nöfnin stutt, hámark 8 stafir og ekki nota séríslenska
stafi. |
 |
 
4.
verkefni.
Sæktu vefinn sem þú vannst með í síðasta
tíma. Bættu inn 2-3 myndum sem þú sækir
út á vefinn, settu nýjan bakgrunn sem þú
hefur sótt út á vefinn. Settu inn hreyfimynd (Animated-picture)
Leitaðu t.d. á www.google.com
 
5.
verkefni.
Farðu út á vefinn og leitaðu að myndum sem gætu
nýst þér við gerð heimasíðu. Vistaðu
þær. Leitaðu líka að góðum bakgrunni.
Ef þú hefur tækifæri til getur þú
líkað skannað inn myndir úr bókum og vistað.
Skoðaðu þær myndir í IrfanView og stilltu stærð
þeirra.
 
Thumbnails.
Ef þú ákveður að hafa margar myndir
á sömu síðu er eitt ráðið
að setja þær inn sem Thumbnails. Þá
birtast þær á stærð við frímerki
en lesandi getur smellt á þær og þá
stækka þær upp í fulla stærð.
Þetta gerum við með því að setja
inn á vefsíðuna þær myndir sem eiga
að fylgja henni. Veljum myndina, smellum á hnapp 3
á Picture stikunni og þá breytast myndirnar.
Skoðaðu
nú síðuna í Preview.
|
 |
 |
Ef
þú vilt að texti birtist þegar bendlinum er
beint að myndinni setur þú textann inn með því
að skrifa hann í Picture Properties |
|
Theme
– stílsíður
Theme er fyrirfram skilgreindir stílar. Hægt er að
nota þá á einstakar síður en oftast
eru þeir notaðir á allan vefinn. Veldu Format –
Theme. Þá opnast þessi gluggi.
Skoðaðu
möguleikana í glugganum vinstra megin.
Þegar
þú ert búin(n) að finna stíl sem
þér líkar getur þú breytt lit og
ýmsu fleiru með hnappnum Modify.
Efst til vinstri
getur þú merkt við hvort þú vilt að
þetta útlit sé á öllum síðum
vefsins eða eingöngu þessari einu. |
| ©
Þórunn Traustadóttir. |
Síðan
var uppfærð
20-apr-03
|
|
|
|