Varist mjög smátt letur
Lesendur vilja ekki þurfa að leggja nefið upp að
skjánum til þess að lesa það sem þú
hefur skrifað. Mundu líka að takmarka leturgerðirnar
sem þú notar og notaðu eingöngu þær
algengustu.
Ofnotið ekki ramma
Margir notendur kvarta undan síðum sem eru byggðar
upp á römmum. Það verður að vera
góð ástæða fyrir því
að sami ramminn sjáist á öllum síðunum.
Látið texta ekki renna saman við bakgrunn
Enginn vill lesa gráan texta á hvítum grunni.
Sýnið lesendum ykkar tillitsemi og gætið
að þessum litum. Hafið einnig í huga að
lesendur ykkar gætu verið lesblindir og þess vegna
ætti að varast ákveðna liti á stöfum.
Varist órólega bakgrunna
Órólegir bakgrunnar geta truflað lesendur svo
að þeir missa athyglina. Notið ljósa, mjúka
bakgrunna sem krefjast ekki athygli.
Notið liti sem tóna saman
Varist að vera með miklar andstæður í
litum á texta, bakgrunni, hnöppum og öðru
því sem þið setjið á heimasíðuna.
Í Theme er hægt að skoða heppilegar litablöndur.
Varist breytingar á leturgerðum og litum
Vefarar sem falla í þá freistni að blanda
saman mörgum litum og leturgerðum, jafnvel nýtt
letur og nýr litur á hverri málsgrein, rugla
lesendur sína og þeirr missa fljótt þráðinn.
Látið töflur hjálpa ykkur við
að skipuleggja síðurnar
Það er erfitt að lesa langan texta á skjánum.
Hafið textann stuttan og hnitmiðaðan. Brjótið
hann upp með listum eða myndum.
Einfaldar vefsíður
Reynið að hafa hverja síðu einfalda. Munið
að flóknar síður eru lengi að hlaðast
inn og það líkar lesendum ekki. Verið ekki
að troða tækniatriðum inn á síðurnar
bara af því að þið kunnið það.