| 
Fjölbýlishúsin
í Háaleitishverfinu svipar flestum saman.
Fjögurra hæða blokkir, litlar svalir og stórir stofugluggar
eru höfuðeinkenni þessarra húsa. Í þessum
blokkum eru oftast tvær íbúðir á hverri
hæð en þó eru í sumum þeirra þrjár
íbúðir á hverri hæð. Algeng fjölskyldustærð
í upphafi (fram til 1970) var 5 - 7 manns þ.e. hjón
með 4 - 5 börn, en í dag eru aðeins örfáar
fjölskyldur fjölmennari en 5.

Einstaka blokkir
skera sig þó úr hinu almenna útliti og ber
þá fyrst að nefna Sigvaldablokkina sem er Háaleitisbraut
109 - 111. Hún var teiknuð af Sigvalda Thordarsyni,
arkitekt og er mjög falleg. Litaval á henni var líka
alltaf annað en á hinum blokkunum í hverfinu og hefur
haldist óbreytt.
Við
Safamýri voru byggð tvíbýlis- og þríbýlishús
en við Álftamýri, Starmýri og Háaleitisbraut
risu auk blokkanna einnig raðhús.
Þetta er í
stórum dráttum lýsing á íbúðarhúsnæðinu
í hverfinu, aðrar byggingar eru allar tengdar atvinnurekstri
en fjölmörg fyrirtæki hafa aðsetur í hverfinu.
|