Eftir
því sem árin hafa liðið hefur skólum
og menntastofnunum fjölgað. Fyrst reis Álftamýrarskóli
og hófst kennsla þar haustið 1964. Áður höfðu
börnin í hverfinu flest farið í Laugarnesskóla.
Álftamýrarskóli er grunnskóli og í
dag eru u.þ.b. 380 nemendur í skólanum. Um 1970 fór
nemendafjöldinn yfir 1200. Þá var fyrsta kynslóð
hverfisins að vaxa úr grasi. Skólinn var þrísetinn
og kennt frá 8 til 5 á hverjum degi. Nemendur mættu
í skólann kl. 8:00, kl. 12:00 og kl. 15:00

Ármúlaskóli
var tekinn í notkun í kringum 1980. Hann var byggður
úti í gryfju eins og sagt var í hverfinu en svæðið
þar sem hann stendur í dag var áður grjótgryfja
Reykjavíkurhafnar.
Tveir
leikskólar eru í hverfinu, Álftaborg og Múlaborg.
Það er einnig gæsluvöllur við hliðina á
Álftaborg.
 Íþróttafélagið
í hverfinu er Fram. Framarar byggðu
sér félagsheimili við Safamýri og reisulegt íþróttahús.
Þeir reka öflugt íþróttastarf fyrir börn
og unglinga. Í félagsheimili þeirra er einnig félagsmiðstöðin
Tónabær.
Danskóli
Hermanns Ragnars var til margra ára á efri hæðinni
í Miðbæ. Jazzballetskóli
Báru er við Lágmúla.
Sóknarkirkja
hverfisins er Grensáskirkja
en í upphafi áttu margir íbúar hverfisins
kirkjusókn í Háteigskirkju.
|