Ég fæddist rétt fyrir jólin '52 heima hjá afa og ömmu á Sólvallagötunni. Þar bjó ég fyrstu 5 árin en flutti síðan á Eiríksgötu og þaðan á Háaleitisbrautina þar sem við vorum í hópi frumbyggja í því hverfi. Ég man mjög vel eftir að hafa leikið mér í njólaskógi þar sem Kringlan er núna og jafnvel líka þar sem Álftamýrarskóli stendur, en það var nú stutt því skólinn var byggður ári eftir að við fluttum í hverfið.

Skólaganga mín var: Ísaksskóli, Æfingadeildin, Álftamýrarskóli, Hagaskóli, Kennaraskólinn.

Eftir Kennó fór ég að kenna einn vetur austur á Egilsstöðum. Fór síðan til New York í einn vetur en eftir það hef ég kennt við Álftamýrarskóla og alltaf líkað það vel.

Ætt:
Foreldrar mínir eru Trausti Eyjólfsson og Gréta Finnbogadóttir. Mamma er Vestmannaeyingur en pabbi er nú aðallega úr Vesturbænum, keppti með KR í gamla daga og keppti meira að segja á Ólympíuleikunum í London ´48.

Ég er elst fimm systkina en þau eru Gunnar Albert (smiður), Ólafur Árni (kennari), Jón Grétar (smiður) og Sesselja (kennari). Eins og glöggir menn taka eftir þá er ekki fjölbreytninni fyrir að fara hjá okkur systkinunum í starfsvali og svona til þess að hnykkja aðeins á þessu þá eru mágkonur mínar allar uppeldismenntaðar þ.e. 2 fóstrur og ein kennari.

1976 hitti ég hann Stebba minn og við ákváðum að verða hjón og höfum lifað hamingjusöm saman síðan

Við eigum þrjú börn. Elst er Lilja Björk. Hún starfar í franska sendiráðinu, býr með Francois Thierry-Mieg og saman eiga þau litlu Andreu Sólveigu sem er eftirlætið okkar allra.

Árni Freyr er næstur hann er í verkfræði í en vinnur við mælingar á hálendinu á sumrin.

Yngstur er Trausti, hann er í Versló og spilar körfubolta af miklum krafti með ÍR.

Ekki get ég sleppt því að minnast á hann Platon. Hann er hundurinn okkar og lítur á sig sem húsvörð. Hann er nú reyndar af veiðihundakyni en það kemur ekki að sök. Hann er virkilega fínn heimilishundur.

Einn er enn ótalinn en það er hann Dóri, Halldór Már stóri bróðir barnanna minn. Hann býr nú í Barcelóna með fjölskyldu sína. Hann fór þangað til þess að fullnema sig í gítarleik og var m.a. í námi hjá Arnaldi. Nú starfar hann sem gítarkennari og spilar ásamt eiginkonu sinni og tveimur félögum í grítarkvartetinum Mósaik. Þau ætla að koma næsta sumar og fara í tónleikaferð um landið í júlí. Dóri og María eiga einn lítill gullmola, það er hann Stefán litli sem er tveggja ára síðan í ágúst.

 

Allar nánari upplýsingar um mig er að finna á bloggsíðunni minni.