|
Borgin
mín, Reykjavík
margmiðlunarverkefni fyrir börn og unglinga.
Markmið:
- Að
vekja áhuga nemenda á nánasta umhverfi sínu
- Að
efla þekkingu þeirra
- Að
opna augu þeirra fyrir nánasta umhverfi sínu
Í
aðalnámskrá grunnskóla segir m.a. í
áfangamarkmiðum í landafræði: Nemendur
skulu:.....
- þekkja
til helstu náttúruauðlinda, atvinnuvega, búsetumynsturs
og lifnaðarhátta fyrr og nú
- átta
sig á ástæðum þéttbýlismyndunar
.......
Þar
segir einnig í þrepamarkmiðum í sögu,
8. bekkjar
- ........
Jón Sigurðsson gegndi lykilhlutverki í henni
(19. öldinni) og nafn hans er löngu táknrænt
og alþekkt. ..... Loks gefst tækifæri til að
velja sér ýmsa menningarþætti til nánari
skoðunar undir fyrirsögninni sál og líkami.
Þar er fjallað um verkmenningu, heilbrigði, menntamál,
listir og skemmtun. (Þetta ætla ég að reyna
að nálgast með stuttum sögum um líf
og starf fólks á framanverðri síðust
öld)
Þetta
eru allt góð og gild markmið og gott að styðjast
við þau að hluta, en með þessu verkefni
vil ég fá nemendur til þess að skoða
sitt eigið umhverfi, tengja saman nútíð og
þátíð og vekja athygli þeirra á
því umhverfi sem þeir lifa í í
dag ásamt því að velta aðeins fyrir
sér sögunni sem á bakvið okkur er.
Reynsla
mín er sú að stór hluti barna og unglinga
þekkir umhverfi sitt frekar lítið. Ég hef
mjög oft farið með hóp nemenda í miðbæjarrölt
í tengslum við námsefni 7. bekkjar (uppbygging
og þróun Reykjavíkur) og því miður
er það mér oftast undrunarefni hversu lítið
þau þekkja sig í borginni, þau virðast
ekki þekkja sögustaði, byggingar eða annað
það sem var áður hluti af veruleika okkar sem
ólumst upp hér upp.
Verkefninu hyggst ég skipta á þennan veg:
- Borgin
mín Reykjavík
-
Saga borgarinnar Þróun
- Stytturnar
í borginni
- Útivistarsvæði
borgarinnar
Nánar |
Síðan
var uppfærð
15.02.2004
|