|
Mynd þessi var hugsuð sem stutt kynning á dönskukennslu
í Álftamýrarskóla. Skólinn er
móðurskóli í tungumálum og þegar
sú beiðni barst frá FMR að skólinn
tæki þátt í að kynna móðurskólaverkefnið
á sýningu sem haldin var í anddyri Borgarleikhússins
í mars s.l. ákvað ég að slá
tvær flugur í einu höggi. Ég hófst
handa í febrúar og tók upp mikið af efni
eða tæplega tvær klukkustundir. Það skal
tekið fram að ég hef ekki áður tekið
videó og mér tókst að gera öll byrjendamistök
sem hægt er. Þegar töku lauk tóku við
klippingar. Myndin sem sýnd var í Borgarleikhúsinu
var 32 mínútur en það sem nú hefur
verið sett á netið er tæpar 9 mínútur.
Verkefni þetta var unnið á nokkurra ára
gamla videó vél og því miður hafði
ég ekki aðgang að góðum hljóðnema.
Myndin er vistuð með það í huga að
hún verði sem léttust í flutningi á
netinu. Við góðar aðstæður rennur hún
upp á augabragði, en við verri aðstæður
getur tekið nokkrar mínútur að hlaða henni
inn. Öll vinnsla fór fram í Movie Maker.
|
Síðan
var uppfærð
05.04.2004
|