Efniviður minn í örkennsluverkefni og stuttmynd tengjast skólastarfi Álftamýrarskóla. Skólinn er móðurskóli í dönsku og ég hef ásamt dönskukennara skólans ákveðið að útbúa myndband sem verður sýnt í anddyri Borgarleikhússins núna í lok mars. Myndband þetta á að vera kynning á þeim nýjungum sem reyndar hafa verið í skólanum, einkum í þeim tilgangi að þjálfa nemendur í talmálinu.
Örkennsluverkefnið verður gefið út á vefsíðunni Netop ,þar munu tveir nemendur í 10. bekk halda fyrirlestur um Álftamýrarskóla á dönsku og sýna myndir úr skólanum. Reyndar hef ég unnið þó nokkur slík verkefni á undanförnum vikum en þá hef ég eingöngu verið að vinna með hljóð og glærur. Þetta verður fyrsta tilraun með mynd, hljóð og glærur. Þarna sameinast í einu verkefni, vinna í Power Point, vinna með stafrænar ljósmyndir og talmálsþjálfun í dönsku.

Síðan var uppfærð 15.04.2004