|
Ég
lít á þetta verkefni sem stutta sögu um
karla. Ég hugsa oft um það hvernig sjálfsmynd
drengjanna minna myndast. Eiga þeir að vera mjúkir,
töffarar, karlmannlegir, kunna að elda, elska, gera við
bíla og grafa skurði eða mega þeir vera bara
"just an ordinary man"
Flytjendur
eru allir mega karlar, Fóstbræður, Stuðmenn,
Bítlarnir John og Paul, Rex Harrison o.fl.
Þetta
verkefni vann ég í Sound Forge 7.0 sem er útgefið
af Sony. Þetta er mjög þægilegt forrit að
vinna í. Það verður að viðurkennast
að mér leist ekki á hið "opinbera"
forrit námskeiðsins Audacity. Ég eyddi líka
talsverðum tíma í að átta mig á
Modplug Tracker, það er virkilega spennandi forrit og
býður upp á mikla möguleika.
Verkið
er 6500 kb. Ég vann þetta fyrst sem wave en breytti
því síðan í mp3
|
Síðan
var uppfærð
15.02.2004
|