Verkefni unnið í Mediator.
Hér er fjallað um nokkrar af styttum bæjarins. Verkefni þetta er unnið í forritinu Mediator. Ég reyndi að blanda saman ljósmyndum, texta, hreyfimyndum og tónlist. Ég notaði einnig Flash við gerð fyrirsagna. Það má segja að ég hafi reynt að nýta mér allt það sem við höfum fengist við á námskeiðinu Margmiðlun til náms og kennslu.

Það var nú ekki þrautalaust að komast í gegnum þetta. Ég rakst á ýmislegt í Mediator sem ekki gekk upp sjálfsagt vegna kunnáttuleysis hjá mér. Eins og að setja inn myndbönd, þ.e. þegar ég vildi geta sett upp hnappa til þess að kveikja á því, pása og slökkva. Samkvæmt hjálpinni var þetta gert með Bump map og myndafællinn varð að vera mpeg, það fór heil helgi í að reyna að leysa þetta, en ekkert gekk. Ég hef ekki heldur leyst það hvernig ég get stjórnað tónlist. Ég vildi láta hana flæða yfir nokkrar síður, en hafa síðan möguleikann á að lækka eða slökkva. Flash sýningar mínar voru ekki heldur í lagi, það var sama hvaða bakgrunn ég valdi – alltaf kom hann svartur í Mediator.


Síðast en ekki síst lá við endanlegu taugaáfalli þegar ég taldi mig vera búna og brennd allt á disk. Það var skelfilegt. Ég hafði ekki vitað hvernig rétt væri að vista skjalið til útgáfu. En góður samnemandi minn bjargaði mér og kenndi hvernig rétt væri að gera þ.e. File – Creat Distribution File – Quik – Cdrom direct.

Ég gerði tilraun til þess að setja þetta verkefni út á netið, þá hvarf tónlistinn og videomyndirnar svo ég tók það í burtu. Ég veit að ég hefði verið margfalt fljótari og leyst þrautirnar á auðveldari hátt ef ég hefði unnið þetta verkefni sem vefsíðu en það er ögrun að takast á við nýja hluti og gaman þegar þrautirnar leysast.

Það er samt skoðun mín að svona kennsluefni á diskum eigi sér minni framtíð en kennsluefni á vef. Það er aðgengilegra, uppfærslur auðveldar og gengur mun betur ef nýta á efnið til kennslu í stórum hópum (mörgum tölvum) í einu.

Síðan var uppfærð 17.05.2004