Við erum fjögur í heimili. Á heimilinu eru 4 gamaldags símar, ekki einu sinni þráðlausir, en það kemur ekki að sök vegna þess að allir heimilismenn eru með GSM síma. Það eru 4 sjónvarpstækin dreifð um húsið, tvö myndbandstæki og einn DVD spilari. Tvær borðtölvur og ein fartölva, prentari og ýmiskonar jaðartæki sem tengjast því að taka inn tónlist en því miður veit ég ekki einu sinni hvað slík tæki kallast. Við erum með ADSL tengingu síðan í sumar og það var bylting. Þetta er nokkurn veginn tæmandi upptalning á þeim tækjum sem allir kunna á en svo eru líka nokkur tæki sem við hjónin kunnum eingöngu á en synir okkar tveir eiga ótrúlega erfitt með að læra á. Það er t.d. þvottavélin og þurrkarinn, þeir kunna að raða í uppvöskunarvélina en kveikja sjaldan á henni. Eldavélina nota þeir næstum eingöngu í neyð en það gengur betur með örbylgjuofninn en svo ég halli nú ekki á neinn þá verð ég hrósa þeim fyrir einstaka snilld á ryksuguna..............
Framtíðarsýn
Það er erfitt að sjá fyrir hvernig þetta verður allt, líklega stafræn sjónvörp, örþunnir skjáir, engar snúrur og tölvustýrð heimilistæki ásamt vélmönnum sem annast heimilisstörfin (það verðu nú samt kannski ekki innan 5 ára).