|
Á
nokkuð löngum ferli mínum sem tölvukennari
hef ég farið í gegn um ýmiskonar tímabil.
Í byrjun, þá kunni ég næstum
ekki neitt nema að vinna í ritvinnslu og hafði
það eitt í farkestinu þegar ég tók
fyrstu nemendurna. Þau voru ósköp jákvæð
og kvörtuðu ekki, en mér fannst þetta ekki
vera spennandi kennsla svo fljótlega fór ég
með þau í mjög einfalda forritun
af því það var það sem flokkaðist
undir tölvukennslu í þá daga. Sem betur
fór fylgdi lítil kennslubók með forritinu
og í sameiningu fórum við í gegnum þetta.
Þetta leit illa út í byrjun en þegar
árangurinn fór að koma í ljós
varð virkilega gaman í tímum. Mér fannst
ég þó aldrei verða nógu góð
í þessu svo ég hélt áfram að
leita nýrra leiða. Með hinni hefðbundnu ritvinnslu
notaði ég og nota enn alltaf talsvert af kennsluforritum
til þjálfunar á því námsefni
sem nemendur voru að glíma við hjá öðrum
kennurum. Kennsluforrit eru mjög mismunandi en ég
hef alltaf átt mér nokkur uppáhaldsforrit
í gegnum tíðina. Í dag eru öll þau
gömlu dottin út, ganga ekki í nýja MX
umhverfinu, en í staðinn höfum við fengið
mörg ný og alveg frábær forrit og eru
mjög mörg þeirra gefinút af Námsgagnastofnun.
Það
eru mörg ár síðan ég fór
að velta fyrir mér frekari möguleikum nemenda
til þess að nýta tölvurnar til frekara og/eða
annars konar náms. Þar fannst mér tungumálanám
vera mjög skemmtilegur möguleiki og hef reynt það
margoft. Fyrst var það KidLink.
Það var mjög skemmtilegt tímabil. Þetta
var verkefni þar sem nemendur byrjuðu á að
svara fimm spurningum og eftir það opnuðust ótal
möguleikar. Nemendur mínir tóku þátt
í ýmis konar verkefnum, eignuðust pennavini
og kynntust nýjum siðum og löndum í gegnum
jafnaldra sína. Í framhaldi af þessu fór
ég talsvert í ircið. Það er möguleiki
sem því miður hefur orðið undan að
víkja vegna hræðslu við undarlega einstaklinga
sem reyna að misnota börn í gegnum netið.
Það er þó til lausn á þessum
vanda, sem eru lokaðar rásir. Þar geta bekkir
haft samskipti sína á milli og þar held ég
að sé ónýttur möguleiki tungumálakennslu.
Börnin/unglingarnir læra tungumál jafnaldra
sinna og það læra þau ekki í kennslustundum
hjá okkur.
Núna
síðustu árin hef ég verið mjög
upptekin af námsefni á vef. Mér finnast möguleikar
vefsins ótrúleg spennandi. Ég hef sjálf
unnið nokkra slíka vefi. Ég byrjaði á
einum í frönsku
en bjó hann til þegar dóttir mín tók
að sér frönskukennslu fyrir börn á
vegum Háskólans. Sá vefur er ætlaður
algjörum byrjendum. Þar reyndum við að setja
inn almennar upplýsingar sem gætu vakið áhuga
barna en að sjálfsögðu er þar líka
dálítil franska og t.d. barnalög sem nemendur
gátu æft sig að syngja heima (því
miður virka ekki allar krækjurnar lengur). Í
framhaldi af því hóf ég síðan
vinnu við dönskuvef
og fékk dönskukennara skólans til samstarfs
við mig. Sá vefur er ætlaður unglingum sem
hafa nokkra þekkingu í dönsku og þess
vegna er hann næstum allur á dönsku. Þetta
er orðinn mjög stór og öflugur vefur með
mjög fjölbreyttum verkefnum.
Ég
held að það sé mjög gott að vera
tvær við vinnu og uppbyggingu á svona vef. Samstarf
okkar hefur verið mjög gott, hún vinnur verkefnin,
ég tæknivinnuna en svo höfum við reglulega
stutta fundi og þar skiptumst við á hugmyndum
og tillögum. Verkefni eins og þessi vefur eru ekki
búin til á einni kvöldstund, þetta er
margra mánaða vinna og eiginlega lýkur henni
seint eða aldrei. |