|
|
Kynning
Í
bók Böðvars frá Hnífsdal, Strákarnir
sem struku sem kom út 1957 er eftirfarandi frásögn
á bls. 55:
Þeir
settust. Hrólfur (góði maðurinn
í sögunni. ÞT) fór sér að
engu óðslega. Hvann kveikti í pípu sinni og
horfði á reykjarmekkina þyrlast út í
loftið. Svo leit hann á þá félaga. ,,Þegar
þið eruð orðnir fullorðnir, " sagði hann
,,viljið þið þá ekki gjarnan vera hraustir
menn og harðfengir, sterkir og liðugir, syndir sem selir og
þolgóðir við hvaða íþrótt
sem er?" ,,Jú,
auðvitað viljum við það," svöruðu
þeir. ,,Þá
skuluð þið ekki reykja tóbak að ráði,
fyrr en þið eruð átján ára".
Ímyndið
ykkur hvað mundi gerast ef þessi texti væri í
barnabók sem væri gefin út árið 2003.
Nú
ætlum við að kynna okkur tóbak, velta fyrir okkur
uppruna þess og sögu, menningarlegum áhrifum, viðhorfsbreytingum
og áratugarannsóknum á áhrifum tóbaks.
Verkefni
Hópur
1
|
John Lennon söng árið 1968
I´m
so tired, I'm feeling so upset.
Although
I'm so tired, I'll have another cigarette
And
curse Sir Walter Raleigh
He
was such a stupid get.
Hver
var þessi Sir Walter Raleigh og hvers vegna var John að
bölva honum. |
Efnahagsleg áhrif tóbaksræktunar, hvar er tóbak
ræktað. |
Tóbaksvarnir |
Hópur
2
Árið er 1935. Þið eruð hópur ungs
fólks á Íslandi. Hvað vitið þið
um tóbak? Hvað er það sem stjórnar viðhorfum
ykkar til þess? |
Helstu afurðir tóbaksræktunar. Markaðssetning
fyrr og nú. |
Tóbaksvarnir |
Hópur
3
Árið er 1964. Skýrsla um skaðleg áhrif
tóbaksreykinga var að koma út. Hvaða niðurstöður
skýrslunnar ollu hvað mestu fjaðrafoki? |
Tölfræðilegar upplýsingar um tóbaksnotkun |
Tóbaksvarnir |
efst
á síðu
Ferli
Svona
farið þið að:
- Bekkurinn
á skipta sér í þriggja eða fjögurra
manna hópa.
- Hver
hópur fær þrjú verkefni.
- Hóparnir
skipta með sér verkefnum þ.e. upplýsingaöflun.
- Þeir
vinna síðan að sameiginlegri kynningu og ákveða
verksvið hvers og eins.
- Hópurinn
á að stofna bloggsíðu þar sem allir
í hópnum hafa leyfi til þess að skrifa.
Á þessa síðu skráið þið
allar upplýsingar og heimildir sem þið komist
yfir.
- Á
bloggsíðunni eigið þið að búa
til þrjá flokka (kafla) þar sem þið
skráið í þann fyrsta allt sem þið
vitið um tóbak í upphafi verkefnisins. Í
annan kaflann skráið þið það
sem þið teljið ykkur þurfa að afla ykkur
upplýsinga um og í þriðja kaflann skráið
þið að lokum niðurstöður ykkar.
- Ath.
að kennarar munu skoða bloggsíðuna við
lokamat á verkefninu.
|
Þið
leitið upplýsinga:
- á
netinu
- í
bókum og bæklingum
- með
viðtölum (munið eftir að undirbúa ykkur
vel fyrir slík viðtöl, vera búin að
útbúa spurningalista og hafa með ykkur myndavél).
|
Afrakstur
vinnu ykkar eigið þið að kynna fyrir samnemendum
og kennurum. Þið getið valið um tjáningarform.
T.d. getið þið:
- gert
heimasíðu
- haft
kynningu í power point
- sýnt
leikþátt
- gefið
út blað
|
| -
en í öllum tilfellum eigið þið að
draga saman niðurstöður ykkar og taka afstöðu
gagnvart tóbaki. |
efst
á síðu
Mat
Þetta
er hópverkefni en nemendur eiga þó að meta
eigin vinnu sem einstaklingar (10%) og sem hópur(10%). Samantektin
verður metin eftir því hversu skýrt og vel
framsett efnið er, tekið verður mið af frágangi,
skipulagi, skýrleika, mynd- og heimildanotkun, efnistökum,
frumleika og framsetningu. Einkunnargjöf skiptist þannig:
- Kennari
í lífsleikni 40%
- Kennari
í tölvum 40%
- Sjálfsmat
nemanda 20%
|
efst
á síðu
Niðurstaða
efst
á síðu
Uppfært
11-mar-03
|
|