Verkefni fyrir nemendur í 8. - 10. bekk

Landsvirkjun var stofnuð árið 1965 á grundvelli fyrirætlana um byggingu stóriðju á Íslandi. Landsvirkjun vinnur, flytur og selur í heildsölu raforku til almenningsveitna og samkvæmt sérstökum samningum til stóriðjufyrirtækja. Eigendur fyrirtækisins eru ríkið (50%), Reykjavíkurborg (45%) og Akureyrarbær (5%).

Hlutverk Landsvirkjunar er að útvega viðskiptavinum sínum bestu lausnir í orkumálum sem tryggja þeim þau lífsgæði sem þeir sækjast eftir.

Nú skalt þú kynna þér fyrirtækið, skrifa svörin við spurningunum í Word skjal og senda í pósti til kennarans

 

Nú hefst leikurinn. Skráðu hjá þér hversu lengi þú ert að vinna verkefnið.

  • Hvert er hlutverk Landsvirkjunar?
  • Mjög margir unglingar á aldrinum 16 - 20 ára, vinna hjá Landsvirkjun á sumrin. Við hvað vinna þessir unglingar?
  • Landgræðsluhópurinn skiptist í marga misstóra hópa.
    Hvað voru margir í hóp Guðrúnar? En í hóp Óla?
  • Hversu margar eru virkjanir Landsvirkjunar á Íslandi?
  • Hvar á landinu er Krafla? Hvers konar virkjun er hún?
  • Hvað heitir aflmesta vatnsaflsvirkjunin og hvað framleiðir hún mörg MW?
  • Orkumál eru umhverfismál, segja þau hjá Landsvirkjun. Nefndu þrjá aðila sem verða að leggja mat á umhverfisáhrif nýrra virkjunarframkvæmda.
  • Hversu stórt svæði á hálendinu í kringum Blönduvirkjun, hefur Landsvirkjun ræktað upp?
  • Á vef Landsvirkjunar má finna krækju á orðskýringar. Í hvaða einingu er jarðvarmi mældur
  • Undir liðnum spurt og svarað er gefin skýring á því til hvers lón eru. Hver er hún?
  • Að lokum, hversu margir Jónar vinna hjá Landsvirkjun?

 

Síða þessi var uppfærð 30-jan-03