APPLAUD
    A Programme for People to Learn At University-level at a Distance
     
    APPLAUD er samstarfsverkefni sjö Evrópskra háskóla og nýtur ODL (Open and Distance Learning) styrks frá Evrópusambandinu. Verkefnið hófst 1. september 1996
    og er nú á öðru starfsári.
    Háskólarnir sem um ræðir auk Kennaraháskóla Íslands eru:
     
    Department of Teacher Education, University of Helsinki, Finland.
    I.U.F.M. De l'Académie de Grenoble, France.
    Liverpool Hope University College, England.
    Pädagogische Akademie des Bundes in Oberöstreich, Linz, Austria.
    St. Andrew's College, Associate College of the University of Glasgow, UK.
    University of Limerick, Ireland.
    Johannes Kepler Universität, Linz, Austria.
     Samsstarfsstofnanir og APPLAUD verkefni
    Applaud - Partners and Projects
     
    Háskólinn í Finnlandi er meginstofnunin í þessu samstarfi og sér um samskipti við EB. Þar hefur nýlega verið stofnað Media Education Centre sem sér um uppbyggingu á þessu sviði en þegar er komin löng reynsla á fjarkennslu við skólann.
    APPLAUD og önnur verkefni hjá Media Education Centre í Helsinki.

    Í APPLAUD nýtist fyrri þekking þessara stofnana af samstarfi innan OLE verkefnisins (Open Learning and Distance Teacher Education to Promote the European Dimension). OLE verkefninu lauk haustið 1997. Í því var áhersla á þróun námskeiða (Joint Curriculum Development) og hnitmiðuð námskeið (Intensive Course).

    APPLAUD er fjórþætt. Það felur í sér:
     

    að auka hæfni kennara til að nýta fjarnámstækni til fulls.
    að bæta viðmót námsefnis sem nemar nota í fjarnámi.
    vinna að því að viðurkennd séu gæði þess að stunda fjarnám.
    bæta samstarf stofnananna sem standa að verkefninu.
    Markmið APPLAUD eru:
     
    að auðvelda samstarf milli kennaramenntunarstofnana í Evrópu.
    að efla þekkingu og leikni kennara og kennaramenntunarkennara í að nýta sér þá möguleika sem opið nám og fjarnám býður upp á.
    að vinna að því að kennarar, kennaraháskólakennarar og kennaranemar deili með sér reynslu sinni, afrakstri af nýbreytni og góðum vinnuvenjum þannig að unnt sé að koma upp kerfi ODL námskeiða sem kennarar og kennaranemar viðkomandi stofnana geti notað. Sérstök áhersla er lögð á að fá viðurkenningu á gæði námskeiðanna (ECTS - Evrópu einingakerfi fyrir háskólanám).
    að efla skilning á Evrópu og áhuga á að skapa tengsl innan hennar.
    Markhópar eru:
     
    Sjónum er einkum beint að starfsmönnum kennaramenntunar (kennarar, rannsakendur, fræðimenn og þeir sem sjá um hagnýta aðlögun), kennurum sem vinna með þeim sem mynda samstarfsverkefnið og kennaranemum. Nokkrir tugir starfsmanna kennaramenntunar hafa tengst verkefninu og nemar skipta hundruðum. Þá nær verkefnið ná óbeint til stórs hóps kennara sem taka þátt í námskeiðum eða fræðslufundum sem skipulagðir eru á vegum þess.
    Afrakstur og athuganir:
     
    Hver þátttökustofnun sér sérstaklega um þennan þátt og er gert ráð fyrir að hún eigi samstarf við þá sem vinna á sviði ODL í viðkomandi landi. Einnig er gert ráð fyrir að niðurstöður verði kynntar kennarasamtökum í viðkomandi löndum. Hið nýja Media Education Centre við Háskólann í Helsinki safnar þekkingu sem verður aðgengileg fyrir aðra þátttakendur. Um verður að ræða útgáfu á efni (sjá t.d. útgáfuröð á vegum Háskólans í Helsinki, kennaramenntunardeildar) og efni og niðurstöðum verður komið fyrir á heimasíðum einstakra stofnana.
    Einkum er stefnt að þessu:
     
    að hafa áhrif á viðhorf í þá veru að aukning verði á notkun þess í kennaramenntun.
    að safna ítarlegum upplýsingum um nýtingu ODL í kennaramenntun og reynslu manna.
    að auka áhuga á nýtingu upplýsinga- og samskiptatækni.
    að nýta ODL í verulegum mæli við verkefni í kennaramenntun.
    að rannsaka áhrif nýrrar tækni á kennsluhætti og nota til þess tæknibúnað

    Samstarfsverkefni háskólanna sem standa að APPLAUD eru af margvíslegum toga og verða gefin dæmi um þau í öðrum skrifum. Þar er einnig fjallað um megináherslur í verkefninu innan KHÍ.

    Myndbandsráðstefnur eru meðal þess sem talið er mjög áhugavert að skoða. Þar til fyrir fáum árum var útbúnaður til slíkra hluta mjög dýr og þurfti marga tæknimenn til þess að stjórna honum. Með CUSeeMe (Cornell University SeeMe) opnuðust möguleikar til að nota einfaldan og fremur ódýran búnað en gæðin eru hins vegar í lægsta kanti. Í samstarfi við forstöðumann fjarkennslu hafa möguleikar myndsamskipta verið skoðaðir og nemar við KHÍ tekið þátt í myndráðstefnum. Ekki hefur þó verið bolmagn til að fjárfesta í búnaði heldur hefur aðstaða verið leigð.

    Forystu í APPLAUD verkefninu af hálfu Kennaraháskóla Íslands hefur Anna Kristjánsdóttir prófessor. Aðrir starfsmenn KHÍ sem unnið hafa við verkefnið eða komið að því á einhvern hátt eru Sólveig Jakobsdóttir lektor, Sólrún Harðardóttir verkefnisstjóri, Torfi Hjartarson forstöðumaður gagnasmiðju og Salvör Gissurardóttir lektor.

    Samráðsfundir hafa verið haldnir reglulega og í mismunandi háskólum sem verkefnið nær til. Næsti fundur verður í Reykjavík í maí 1998.

     
    Til baka á heimasíðu
    Applaud á Íslandi