
Velkomin á heimasíðu ALTER ECO en það er samstarfsverkefni nokkurra aðila sem
fengu styrk úr Leonardo áætlun Evrópubandalagsins. Verkefnið er undir
íslenskri stjórn. Hérna er kynning á verkefninu eins og staðan er seinni hluta
ársins 1998.
Að kynna nýja orkugjafa, sjálfbæra landnýtingu og vistvæna tækni fyrir kennurum, tæknimönnum og starfsfólki sveitarfélaga. Þetta efni er ofarlega á baugi í alþjóðaumræðu um umhverfisvernd og hefur skort á gögn sem henta fyrir skóla og endurmenntun kennara hér á landi sem og annars staðar.
1. Kennsluefni á geisladiski, sem hægt er að nýta í tölvuvæddri kennslu eða
prenta út á glærur.
2. Námskeið þar sem rennt er lauslega í gegn um öll viðfangsefni verkefnisins og
haldin eru á vegum Endurmenntunardeildar Kennaraháskólans og Háskóla Íslands.
3. Tengslanet milli samstarfslanda til að koma á þjálfunarnámskeiðum þar sem
ítarlega er fjallað um einstaka efnisþætti.
* Haldin eru námskeið á Íslandi fyrir erlenda þátttakendur um hitaveitutækni
(Varmalandi í Borgarfirði) og landgræðslu (bændaskólanum á Hvanneyri).
* Á Ítalíu er stefnt á námskeið um um smíði og notkun sólarsella, sólarhitakerfa
og lífmassa til eldsneytisframleiðslu.
* Í Þýskalandi verður fjallað um orkubúskap Hannoverborgar og kennslutækni sem
hentar við umhverfisfræðslu.
* Í Noregi verður fjallað um ræktun skelja sem sía næringarefni úr sjó og halda
lífrænni mengun í skefjum og einnig ölduvirkjanir.
Styrktaraðilar: Leonardo áætlun EB.
Landgræðsla ríkisins
Landbúnaðarráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Hitaveita Reykjavíkur
Upplýsingar um einstaka þætti má sækja til
Maríu Hildar Maack, s 5616260, tölvufang: kriamari@ismennt.is
Endurmenntunardeild Kennaraháskólans, s 510 3704, fax: 510 3701
Og á heimasíðu verkefnis: www.ismennt.is/vefir/altereco
Íslenskir höfundar efnis eru: Einar Gunnlaugsson, Hitaveitu Reykjavíkur, Ólafur
Arnalds, Rannsóknastofnun Landbúnaðarins, Ása Lovísa Aradóttir, Landgræðslu
ríkisins, Anna Guðrún Þórhallsdóttir, Bændaskólanum á Hvanneyri. Uppsetning
disksins er í höndum Gagnasmiðju Kennaraháskólans og
heimasíðu hefur annast Salvör Gissurardóttir