Kjörsvið í upplýsingatækni í KHÍ

Á vormisseri 2001 geta nemendur í fyrsta skipti valið nýtt kjörsvið í upplýsingatækni. Nemendur sem velja kjörsvið í upplýsingatækni taka að lágmarki 10 einingar á því sviði og er þá gert ráð fyrir að þeir taki 15 einingar á öðru sviði. Jafnframt geta nemendur á öðrum kjörsviðum valið að taka eitt eða fleiri námskeið af kjörsviðinu.

Kynning

Viðfangsefni   Námskeið eftir misserum

Markmið

Kennarar Dæmi um verkefni

 

Lýsing á námskeiðum

Upplýsingatækni og skólastarf (3e)
Námsumhverfi (2e)
Þekkingarsamfélagið (2e)
Námsgagnagerð og miðlun (3e)

1. febrúar 2001

Kennarar í upplýsingatækni

Karl Jeppesen lektor
Salvör Gissurardóttir lektor
dr. Sólveig Jakobsdóttir dósent
Torfi Hjartarsson lektor

Aðrar kennarar við KHÍ sem vinna að viðfangsefnum og verkefnum á sviði upplýsingatækni:

Anna Kristjánsdóttir prófessor
Gísli Þorsteinsson lektor
Jón Jónasson aðjúnkt
dr. Ingvar Sigurgeirsson prófessor
dr. Sigurjón Mýrdal dósent
Þuríður Jóhannsdóttir verkefnisstjóri

efst á síðu

 

Verkefni

dæmi um viðfangsefni - slóðir að vefjum nemenda á upplýsingatæknibrautum við Kennaraháskóla Íslands

Námskeið í framhaldsdeild:
Upplýsingatækni í menntun og tölvumenning skóla
Nám og kennsla á Netinu

 

 

Upplýsingatækni

Nýtt kjörsvið í boði - 4 námskeið - 10 einingar

Nemendur sem velja kjörsvið í upplýsingatækni taka að lágmarki 10 einingar á því sviði og er þá gert ráð fyrir að þeir taki 15 einingar á öðru sviði. (Athugið að á næstu árum er gert ráð fyrir að fjölga námskeiðum í upplýsingatækni sem kjörsviði). Jafnframt geta nemendur á öðrum kjörsviðum valið að taka eitt eða fleiri námskeið af kjörsviðinu.

Markmið

Með kennslu á kjörsviðinu er stefnt að því kennaranemar verði sem best í stakk búnir til að hagnýta möguleika sem upplýsingatækni veitir við framkvæmd og skipulag skólastarfs, við nám og kennslu á greinasviðum og við samþættingu námsgreina. Ekki er lögð megináhersla á upplýsingatækni sem sjálfstæða námsgrein í grunnskóla heldur þátt tækninnar og lykilhlutverk í námi og skólastarfi.

efst á síðu

Viðfangsefni


Á kjörsviðinu er fjallað um alla meginþætti tölvunotkunar í skólastarfi, keppt að tæknilegri færni og tæknilæsi og stefnt að sem næmustum skilningi á þýðingu upplýsingatækni fyrir nám, kennslu, upplýsingaleit, miðlun, samskipti og samfélag. Sérstakri athygli er beint að áhrifum tækninnar á hlutverk kennara og nemenda, möguleikum kennarans til að nýta tæknina í skólastarfi og stuðla að breyttum náms- og kennsluháttum. Litið er til sem flestra greinasviða og þátta skólastarfsins og leitast við að tengja umfjöllun um upplýsingatækni og skólastarf fræðilegri umræðu um nám, uppeldi og samfélagsþróun.

Til að tryggja samfellu á milli námskeiða á kjörsviðinu er meðal annars ætlast til að nemendur eigi allir stafræna verk- og ferilmöppu (portfolio) þar sem þeir safna og birta efni á meðan þeir stunda nám á sviðinu. Í möppunni fá bæði nemendur og kennarar gott yfirlit yfir þróun í náminu, verk nemenda og áherslur kennara; af henni má ráða margt um ferli náms og afrakstur (process and product). Einnig er lagt kapp á tengja allt nám á sviðinu sem best við vettvangssnám og kennslu í grunnskóla.

efst á síðu

Námskeið

Af eftirfarandi töflu má sjá skipan og umfang námskeiða á sviðinu.

  Nr Námskeið ECTS

3. misseri

20.50.31.016

Upplýsingatækni og skólastarf

3 6
4. misseri 20.50.41.020 Námsumhverfi 2 4
5. misseri 20.50.51.026 Þekkingarsamfélagið 2 4
6. misseri 20.50.61.030 Námsgagnagerð og miðlun 3 6

5. misseri Sama framboð og á 3. misseri
6. misseri Sama framboð og á 4. misseri

efst á síðu

20.50.31.016 Upplýsingatækni og skólastarf (3e)

Tími: 3. misseri.

Kennari: NN

Á þessu inngangsnámskeiði er farið yfir sviðið upplýsingatækni og skólastarf og litið til margra átta. Nemendur takast á við ýmsar grundvallarspurningar, svo sem um hlutverk tækninnar í skóla, þróun tækninotkunar í félagslegu ljósi, væntingar sem við tæknina eru bundnar og möguleg áhrif upplýsingatækni á nám og kennslu með hliðsjón af ýmsum greinasviðum og þáttum í skólastarfi. Jafnframt er á námskeiðinu lagður mikilvægur grunnur hvað snertir verklag, tæknilega færni og tæknilæsi. Nemendur leggja upp verk- og ferilmöppu á Vefnum, leita fanga á bókasafni og Netinu, skoða dæmi um ýmsa nýbreytni og framsækið skólastarf, ræða saman á Vefnum og miðla hver öðrum af því sem þeir verða vísari.

efst á síðu

20.50.41.020 Námsumhverfi (2e)

Tími: 4. misseri.

Kennari: NN

Á námskeiðinu verður athygli beint að dreifðum og sveigjanlegum náms- og kennsluháttum með stuðningi upplýsingatækni og tölvusamskipta. Nemendur kynnast ýmsum búnaði sem beitt er í fjarkennslu og fjarnámi annars vegar og hins vegar netnámi eða dreifnámi í tengslum við staðbundið nám. Áhersla verður lögð á að nemendur verði færir um að skipuleggja að einhverju marki námsumhverfi þar sem tækni af þessum toga er beitt, fái sem gleggsta mynd af því úrvali tæknilausna sem um er að ræða og öðlist sem bestan skilning á þeim möguleikum sem felast í dreifðum og sveigjanlegum náms- og kennsluháttum með tilliti til uppeldis og skólastarfs.

efst á síðu

20.50.51.026 Þekkingarsamfélagið (2e)

Tími: 5. misseri.

Kennari: NN

Á námskeiðinu verður fjallað um uppeldi og nám, skóla og samfélag í ljósi þróunar á sviði rannsókna, framsetningar á þekkingu, tæknimiðlunar og upplýsingaiðnaðar. Athygli verður beint að möguleikum til skráningar, stafrænum námsgögnum, afþreyingariðnaði og þekkingariðnaði með áherslu á kennsluhugbúnað, tölvuleiki, myndræna miðlun, framboð upplýsinga á Vefnum, efnisleit, gagnrýnið mat og heimildarýni. Nemendur skoða og leggja mat á efni með hjálp greiningarlykla, meðal annars kennsluhugbúnað, tölvuleiki, vefi og fleira. Leitast verður við að tengja umfjöllun um efnisleit og stafræn gögn við skipulag kennslu og gerð kennsluáætlana, sögu og þróun miðlunar, vinnubrögð í atvinnulífi og almenna lífshætti, ekki síst barna og unglinga.

efst á síðu

20.50.61.030 Námsgagnagerð og miðlun (3e)

Tími: 6. misseri.

Kennari: NN

Á námskeiðinu verður athygli beint að námsefnisgerð með hjálp upplýsingatækni, vefsíðugerð og margmiðlun. Nemendur spreyta sig á gagnagerð af þessum toga, kynnast áhöldum til vinnslu á myndefni og hljóðum, setja saman einfalt efni þar sem miðlum er teflt saman og fara yfir ýmis grundvallaratriði sem varða miðlun og framsetningu á efni. Keppt verður að því að nemendur leggi vel niður fyrir sér hvernig kennarar annars vegar og nemendur í grunnskóla hins vegar geti best fært sér nýjar leiðir til miðlunar í nyt. Ennfremur verður leitast við að setja umfjöllun um námsefnisgerð og margmiðlun í fræðilegt samhengi kenninga um nám og kennslu.

efst á síðu

Salvör Gissurardóttir vann þessa vefsíðu í febrúar 2001