Salvör Gissurardóttir
Upphaflegt 27-Mar-01 - Síðast uppfært 14-sep-01

Annálaskrifarar nútímans

Skoðaðu hérna nokkra sem eru að skrifa annála á Íslandi í september 2001.

Annálar voru ekki eingöngu skrifaðir á Íslandi 1400-1800, það er núna kominn blómatími nýrrar tegundar af annálum - nú er auðvelt að búa sér til annál á vefnum og skrá í tímaröð hvað sem manni dettur í hug. Ekki eingöngu texta, það má vísa í vefslóðir og myndir og jafnvel hljóðskrár. Þetta er miklu, miklu einfaldara en gera vefsíður eða setja upp umræðulista og hver sem er getur sett upp sinn eigin annál og byrjað að birta heimsbyggðinni skrif sín.

Skrifin koma í tímaröð - það nýjasta efst. Þannig eru líka annálarnir eins konar fréttamiðlar, geta verið ópersónuleg fréttabréf eða innilegar dagbækur sem lýsa dýpstu þrám og tilfinningum. Ég hef ekki séð á vefnum nein dæmi um að vefannálar séu notaðir í kennslu en mér finnst hérna komið alveg úrvalsverkfæri til ýmis konar ferilsvinnu - verkefna sem standa yfir langan tíma og þróast smám saman. Í námi nútímans leggjum við áherslu á að nemandinn byggi upp eigin þekkingu og sé meðvitaður um sína þekkingar- og skilningsleit. Ég held að annálar af þessum toga séu ágætt verkfæri til þess að skrá svona feril einhvers konar náms - líka persónulega þroskasögu. Það er hægt að nota svona dagbækur á vefnum á ýmsa vegu, breyta ásýnd hennar svo hún passi viðkomandi og skrifa í hana hvenær sem manni dettur í hug. Kannski nokkrum sinnum á dag, kannski líða einhverjar vikur á milli.

Annálar - viðburðaskrár - dagbækur - fréttabréf
Annálar eða viðburðaskrár á vefnum (web logs) eru eins konar dagbækur þar sem eigendurnir geta skráð inn og birt stuttar greinar og úrdrætti, hugmyndir og hugsanir og ýmis konar upplýsingabúta án þess að þurfa að fara og uppfæra vefsíður á hverjum degi. Flestir annálar á vefnum eru eingöngu innlegg frá einum aðila, eiganda annálsins er pistlahöfundur sem hefur sérstakt lykilorð sem gerir honum kleift að slá inn pistla gegnum vefinn. Hann getur þannig hvar sem hann er staddur í heiminum farið á vefinn og bætt í dagbókina sína. Ef aðrir hafa notendanafn og lykilorð geta þeir líka bætt í dagbókina, þannig er hægt að nota svona annála við ýmis konar ferilskráningu, viðburðaskrár, fréttamiðlun og hópvinnu þar sem framlögin koma í tímaröð og við viljum að það nýjasta sé efst.

Það er miklu einfaldara að halda úti vefannál en umræðulista á vef því að er enginn strúktúr nema tímaröð - innleggin eru í tímaröð og það nýjasta efst. Það er líka miklu einfaldara að gera vefannála en vefsíður og auðvelt að bæta við þá - ekki þarf neitt að spá í ftp forrit og breytingar á vefsíðum.

Það getur verið sniðugt að tengja annála við vefsíður.
Það þarf þá ekki að hafa neina sérstaka tölvupóstlista og útsendingar til að hafa samskipti við lesendur/notendur.og spyrja lesendur á vefsíðum.

Fólk á ferðalögum getur stundum komist á vefinn (t.d. á netkaffihúsum erlendis) en ekki í tölvupóstinn sinn og það getur verið auðveldara að bæta við innleggi á annál.

Það tekur enga stund að pósta innlegg á vefannál. Það þarf að tengjast vefsíðu og gefa upp aðgangsorð, skrifa textann og smella á hnapp og þetta er komið á vefinn.

Vefannálar eru ný ritunaraðferð - það er eins og hægt sé að vera frjálsari og innilegri og láta allt vaða (alltaf hægt að breyta seinna), setja fram hugmyndir sem eru að kvikna og seinna verður unnið úr. Margir nota annála til að skrifa dagbækur á Netinu. Þessar dagbækur eru oft mjög persónulegar og andstæða við fréttabréf.

Það eru margir aðilar á Netinu sem bjóða ókeypis vefannála. Einn allra vinsælasti er Blogger (sem ég hef prófað en hefur stundum verið lengi að koma - það eru svo margir að nota) en ég prófaði að setja upp vefánnál á www.pitas.com

Ég kallaði annálinn samvinna og svo fékk ég sent í tölvupósti hvert lykilorðið væri.

And you're ready to go!
Your new account is ready! Your username is:
samvinna
and your url will be
http://samvinna.pitas.com
(but of course there's nothing there yet!)
Your initial password has been mailed to you, so check your mail and then go to the admin area to start using your account!

Í tölvupóstinum fékk ég að
Hi Salvor, I've set up your password for the pitas.com stuff! It's: 361682

Til að skoða annálinn http://samvinna.pitas.com

Til að bæta við texta fara á http://pitas.com/login
gefa upp Username: samvinna og Password: 361682

Hér eru aðrir vefir þar sem þið búið til annála og það kostar ekkert:

http://www.pitas.com
http://www.weblogs.com
http://www.blogger.com
http://www.livejournal.com
http://www.velocinews.com

http://manilasites.com

Weblogs: A History and Perspective (Rebeccas Pocket, September 2000)

What the hell is a weblog and why don´t they leave me alone?

An Incomplete Annotated History of Weblogs 2.mars 2001

Weblog resources FAQ - Robot Wisdom

Staying afloat on WEBLOGS - Jsonline.com

memes.net Weblogs

Weblog madness

The Web the way it was (wired news about weblogs)

You are the e-generation and we want your story

 

Bloggin' On

Perl og annað dót til að setja upp eigin annálakerfi:
http://www.grohol.com/downloads/oj/

http://squishdot.org/index_html

Í kennslu:

http://www.thewebtoday.com

Saga og atburðir í tímaröð:
Mynd af íslenskum annál (Árnastofnun í Kaupmannahöfn)
Annáll Kötlugosa

Slashdot

VoodooExtreme

editthispage.com

I Cringely

More Weblogs

memepool.com

http://www.evolt.org

http://wmf.editthispage.com

http://www.goodexperience.com

http://hypertext.pair.com

http://www.rachnajit.com/Lekhani

http://www.infolets.com

http://www.peterme.com

http://www.webword.com

http://slashdot.org

http://aaronland.net/weblog/category/17

http://www.xplane.com/xblog

http://www.eatonweb.com/portal

http://www.weblogs.com

http://www.ringsurf.com (ekki um annála en sniðug hringamyndun)

http://www.untickalock.com/jakob/index.html (ekki um annála - grín um DN)

http://anomy.net/useit.competition/

http://www.robotwisdom.com/issues/nielsen.html

http://noahgrey.com/greysoft/
http://noahgrey.com/greysoft/features.shtml

***********************

"Weblogs are like the signal fires people used to build on hilltops, passing the news from town to town," says Jorn Barger, an AI software designer who created the first weblog (and coined the term) in 1997. His Robot Wisdom, a sort of mega bookmarks list editorialized and arranged by date, is now one of hundreds of such sites. Like other 'blogs, www.robotwisdom.com reflects its author's obsessions, with an eclectic mix of tech musings, Net culture, progressive news, and James Joyce minutiae.

This year, Barger's wisdom took to another kind of ether - the airwaves. He contributes material to This Is Hell!, a Saturday-morning radio show in Chicago. Of course, Barger still broadcasts daily on the Net, where he and his fellow webloggers create trails of links for others to follow.

- Michael Stutz