Salvör Gissurardóttir

Athafnaver í Vestmannaeyjum

Þetta er Síða1 - Þrjár myndasíður: Síða1 Síða 2 Síða 3

Miðvikudaginn 8. apríl 1998 var opnað Athafnaver fyrir ungt fólk í Vestmannaeyjum. Verið er í sérstöku húsi og er búið mörgum nýjum tölvum, nokkrum í hverju herbergi. Auk þess er í verinu ýmis annar tölvubúnaður og við opnunarhátíðina var gefin til þess fullkomin stafræn myndavél. Tölvurnar eru nettengdar en í verinu er öflugur netþjónn og hraðvirk Intenettenging. Páll Marvin Jónsson er starfmaður Athafnaversins en auk hans starfa þar í hlutastarfi einir tíu fjölbrautaskólanemar. Þá hefur Athafnaverið sér við hlið hóp verndara eða fagráð en í því eru sérfræðingar á sviði upplýsingatækni og nýsköpunar bæði úr atvinnulífi og háskólum. Fyrsti fundur verndara var í Vestmannaeyjum 8. apríl, skömmu áður en verið var formlega opnað. Athafnaver af þessari gerð er nýjung á Íslandi og er það von aðstandenda þess að ungt fólk geti þarna lært og tileinkað sér nýja tækni en ekki síður fengið þarna vinnuaðstöðu í skapandi umhverfi til að undirbúa og hrinda af stað eigin verkefnum.

Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum opnaði Athafnaverið formlega og samgönguráðherra opnaði heimasíðu þess. Við opnunina voru einnig flutt nokkur stutt ávörp og flutti ég ávarp fyrir hönd verndara Athafnaversins. Þar sagði ég meðal annars (ekki orðrétt):

"Ég vil fyrir hönd verndara óska Vestmannaeyingum til hamingju með Athafnaverið. Þetta er merkilegt framtak og mun án efa auka þekkingu og möguleika ungs fólks í Vestmannaeyjum á nýrri tækni og hagnýtingu hennar. Það er ekki langt síðan ég frétti fyrst af starfsemi versins og tók að mér að vera einn verndara þess. Hlutverk verndara er að gefa góð ráð og koma með hugmyndir að starfsemi í Athafnaverinu, ekki að skipuleggja starfsemina því þar á að ríkja það frjóa og skapandi umhverfi þar sem niðurstöður og þróun eru ekki alltaf fyrirsjáanlegar nema skammt fram í tímann. Ég hlakka til að fylgjast með Athafnaverinu og vinna að uppgangi þess. Í starfi mínu í skólakerfinu hef ég fylgst með vinnu barna og unglinga í Vestmannaeyjum á sviði upplýsingatækni. Ég hef oft notað þau verkefni Vestmannaeyjabarna og kennara þeirra sem þegar eru á vefsíðum til að sýna kennurum víðs vegar að á landinu hvernig hægt er að nota upplýsingatækni á frábæran hátt. Þar nefndi ég sérstaklega vefsíður um landnám Íslands, landafræði, nútímaþjóðsögur og erlent samstarfsverkefni um lífríkið. Ég hlakka til þegar ég get sagt frá viðfangsefnum í hinu nýja Athafnaveri á sama hátt . Við sem störfum í atvinnulífinu og innan skólakerfisins þurfum á að halda svona frumkvæði og þori til að prófa nýja leiðir eins og stofnun Athafnaversins ber með sér. Umhverfi eins og þar ríkir hvetur til uppgötvunar- og leitarnáms og samvinnu á alveg nýjan hátt . Ég óska öllum stelpum og strákum í Vestmannaeyjum til hamingju!"

Þetta er Síða1 - Þrjár myndasíður: Síða1 Síða 2 Síða 3