Björk

eftir

Jóhanna Rósa Ágústsdóttir

Khi7241@khi.is

Kynning

Einn af okkar þekktasta tónlistamanni í dag er Björk Guðmundsdóttir. Hún hefur farið sínar eigin leiðir í tónlistarsköpuninni og er stíll hennar frumlegur, skemmtilegur og kemur sífellt á óvænt. Hún á að baki langan og litríkan feril þrátt fyrir ungan aldur. Forvitnilegt er að skoða hvernig hún hóf ferilinn á Íslandi og var þá söngkona í hljómsveitinni Tappi tígarass, en er í dag heimsfræg og virt sólósöngkona. Björk er einstök og litrík persóna sem er vert að veita athygli.

 

 

Verkefni

  1. Gerið stutta samantekt um feril Barkar. Nefnið þær breiðskífur sem Björk hefur gefið út fyrir erlendan markað og þau áhrif sem útgáfa þeirra hafði á lífsferil hennar. Er hún brautriðjandi fyrir aðra tónlistamenn sem vilja hasla sér völl erlendis, eða gerir hún þeim erfitt fyrir?

     

  2.  

     

     

    Bjargir

    Hér eru þær upplýsingar sem þú þarft í máli og myndum:

    Hér er hægt að fá ýmsar upplýsingar um feril Bjarkar

    Fyrsta sólóplata Bjarkar vakti strax mikla athygli. Hún bar heitið Post.

    Önnur breiðskífa Bjarkar kom út aðeins ári seinna, Debut.

    Síðasta breiðskífan sem Björk gaf út heitir Homogenic.

    Björk hefur fengið verðskuldaða athygli og fengið meðal annars viðurkenningu Mtv

    Áður en Björk hóf sólóferil sinn var hún meðlimur í Sykurmolunum sem var mjög skemmtilg hljómsveit sem spilaði nokkuð erlendis.

    Björk á sér marga aðdáendur, hér er krækja í hann.

    Til að fá enn fleiri fróðleiksmola um poppsöngkonuna er þessi krækja mjög skemmtileg.

     

    Ferli

    Nemendur vinna saman í litlum hópum (tveir til þrír í hverjum hóp). Verkefnið er ætlað efstu bekkjum grunnskólans, sem hafa tekið tónmennt í vali.

    1. Nemendur safna saman fróðleiksmolum um söngkonuna á vefnum
    2. Nemendur skrifi tvær til þrjár vélritaðar síður.
    3. Muna að vitna í heimildir eins og þörf er á.
    4. Beita rökum þegar fengist er við viðfangsefnið, hvort hún sé brautriðjandi fyrir aðra tónlistamenn í framtíðinni.
    5. Vanda málfar og stafsetnigu.
    6. Vanda uppsetningu og frágang.

       

      Mat

      Það sem kennarinn hefur í huga þegar hann metur verkefnin.

      1. Samantekt, niðurröðun og uppsetning efnistaka.
      2. Málfar og stafsetning
      3. Beiting á rökum
      4. Beiting heimilda.
      5. Heildamynd á samantektinni.

Niðurlag

Með þessari samantekt vona ég að nemendurnir hafi náð að tileinka sér leit á vefnum um leið og þeir vinna skemmtilega samantekt um þessa frábæru söngkonu. Einnig að nemendur fái aukinn áhuga á að leita sér að fróðleiksmolum um tónlistamenn á vefnum.