Framhaldsskóli fyrir þig

 

eftir

Jensínu G. Hjaltadóttur

 

Kynning | Verkefni | Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða

 

Kynning

Jæja góðir hálsar! Þá er komið að því! Þið eruð á leið í framhaldsskóla. En er sama í hvaða skóla þið farið? Bjóða allir skólar upp á sama námsefnið? Hvað ætlið þið að verða? Og hvar er það kennt? Við ætlum núna að skoða hina ólíku skóla og hvað þeir bjóða upp á fyrir ykkur.


Verkefni

Þú ert aðstoðarskólastjóri í framhaldsskóla. Eitt af verkefnum þínum þetta árið er að fara í grunnskólana og kynna skólann þinn fyrir 10. bekkingum. En til þess að þú getir það verður þú að hafa góða þekkingu á skólanum. Þess vegna ferð þú á netið og skoðar heimasíðu skólans þíns, sem þar er að finna. Þú getur haft þessar spurningar í huga: Hvaða námsbrautir býður skólinn upp á? Hvað leggur hann mesta áherslu á (bóknáms/verknámsbrautir)? Er auðvelt að skipta um braut innan skólans og nýtast þeir áfangar sem þið hafið þegar lokið á nýju brautinni? Fleiri spurningar koma eflaust upp í hugann eftir því sem þið skoðið vefsíðurnar og þið notið þær að sjálfsögðu líka. Enn fremur hefur ykkur verið falið að kynna í stuttu máli nemendafélagið og félagslífið í skólanum. Þegar þið hafið svarað spurningunum útbúið þið kynningu fyrir bekkjarfélaga ykkar.


Bjargir

Hér eru slóðir allra framhaldsskóla landsins!

Borgarholtsskóli

Fjölbrautaskóli Suðurlands

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Fjölbrautaskóli Vesturlands

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Fjölbrautaskóli Norðurl. vestra

Flensborgarskólinn

Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu

Framhaldsskóli Vestfjarða

Framhaldsskólinn á Húsavík

Framhaldsskólinn á Laugum

Framhaldsskólinn í Skógum

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Kvennaskólinn í Reykjavík

Menntaskólinn að Laugarvatni

Menntaskólinn á Akureyri

Menntaskólinn á Egilsstöðum

Menntaskólinn í Kópavogi

Menntaskólinn í Reykjavík

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Menntaskólinn við Sund

Verkmenntaskóli Austurlands

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Verzlunarskóli Íslands

 


Ferli

    1. Byrjað er á að skipta í hópa. Hæfileg hópstærð er 3-4. Mjög óheppilegt er að vera fleiri en fjórir saman í hóp.
    2. Þið veljið ykkur skóla og skoðið heimasíðu hans á vefnum,
    3. svarið spurningunum hér að ofan og
    4. búið ykkur undir að kynna skólann fyrir bekkjarfélögum ykkar. Sú kynning getur verið með ýmsu móti en hafið í huga að hlutverk ykkar er að ná sem flestum í ykkar skóla og hluti af því er áhugaverð og vel skipulögð kynning.
    5. Þið gætuð búið til veggspjöld, smá bækling, glærusýningu, fyrirlestur, myndbönd og fleira og fleira, allt eftir því sem ykkur dettur í hug og hentar ykkur.
    6. Þið kynnið ykkar skóla fyrir bekkjarfélögunum.

 


Mat

Frammistaða ykkar verður metin eftir kynningunni. Hvernig er hún fram sett, er hún hnitmiðuð, vekur hún áhuga, kemur allt fram í henni sem nauðsynlegt er að vita um skólann? Hópvinna verður metin sem ein heild, þ.e. hver hópur fær eina einkunn.


Niðurstaða

Með þessu verkefni æfast nemendur í að nota upplýsingar af vefnum, leita að þeim, skipuleggja kynningar og fá að lokum smá hjálp við það erfiða verkefni að velja sér framhaldsnám.


Seinast uppfært 26. nóvember 1998.

Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.