|
Hér kemur fyrirsögn á lexíu eftir Nafnið þitt KynningSkrifaðu texta hér fyrir nemendur. Skrifaðu stutta málsgrein til að kynna verkefnið eða lexíuna fyrir nemendum. Ef um sviðsmynd eða hlutverk er að ræða skaltu lýsa því(dæmi: "Þú ert spæjari á höttunum eftir dulafullu ljóðskáldi"). Ef ekkert slíkt er til staðar skaltu nota þessa málsgrein til að kynna og gefa yfirlit. Mundu að tilgangur kynningar er að undirbúa og klófesta lesandann.
VerkefniÚtskýrðu á skýran og einfaldan
hátt hver verður afrakstur af vinnu nemenda.
BjargirHér skaltu segja frá og krækja í staði á Interneti (eða lýsa tækjum og búnaði í skólastofunni) sem gagnast nemendum við að leysa verkefnið. Lýstu öllum krækjum(tengingum) svo nemendur viti alltaf fyrirfram á hvað þeir eru að smella Stiklutexti - dæmi um krækjur inn í texta:
FerliGetur þú lýst þeim þrepum sem nemendur þurfa að fara í gegnum til að ljúka verkefninu? Láttu vefritilinn þinn númera lista fyrir þig. Reyndu að lýsa atburðarás og vinnuröð nákvæmlega og eins vel og þú getur, hafðu í huga að þetta er skrifað fyrir nemendur en að aðrir kennarar geti aðlagað verkefnið að sínum þörfum..
Þú gætir líka veitt ráð um hvernig eigi að skipuleggja þær upplýsingar sem safnað er. Þetta gætu verið ráðleggingar um að nota flæðirit, töflur, hugtakakort eða annað skipulag. Ráðleggingar geta líka verið gátlisti yfir spurningar sem nota á til að greina upplýsingar eða segi hvað eigi að skoða sérstaklega eða hugsa um. Ef þú hefur fundið á vefnum eða útbúið leiðarvísa sem tengjast efni þessarrar lexíu þá skaltu vísa í það. Til dæmis gæti það verið um vinnubrögð eins og hugstormun eða hvernig eigi að búa sig undir að taka viðtal við sérfræðing.
MatLýstu fyrir nemendum hvernig frammistaða þeirra verður metin. Þú getur líka vísað í matsblöð eða gefið stutt yfirlit yfir hvaða viðmið eru notuð við mat. Þú skalt tiltaka hvort gefin verður einstaklingseinkunn eða hvort hópvinna verður metin sem ein heild.
NiðurstaðaHér skaltu hafa nokkrar setningar sem draga saman lærdóminn sem fenginn er í þessu viðfangsefni eða lexíu. Þú getur einnig varpað fram spurningum eða sett inn krækjur til að hvetja til frekara náms.
Seinast uppfært 6.febrúar 2001 hér er mikilvægt að hafa dagsetningu sem segir hvenær seinast var unnið í síðunni! Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.
|