eftir
Nafnið þitt
Skrifaðu texta hér fyrir nemendur. Skrifaðu stutta málsgrein til að kynna verkefnið eða lexíuna fyrir nemendum. Ef um sviðsmynd eða hlutverk er að ræða skaltu lýsa því(dæmi: "Þú ert spæjari á höttunum eftir dulafullu ljóðskáldi"). Ef ekkert slíkt er til staðar skaltu nota þessa málsgrein til að kynna og gefa yfirlit. Mundu að tilgangur kynningar er að undirbúa og klófesta lesandann.
Útskýrðu á skýran og einfaldan
hátt hver verður afrakstur af vinnu nemenda.
Afraksturinn getur verið fólginn í að :
Hér skaltu segja frá og krækja í staði á Interneti (eða lýsa tækjum og búnaði í skólastofunni) sem gagnast nemendum við að leysa verkefnið. Lýstu öllum krækjum(tengingum) svo nemendur viti alltaf fyrirfram á hvað þeir eru að smella
Stiklutexti - dæmi um krækjur inn í texta:
Í Álfavefnum
er safn ljóða sem sýna hvernig skáld nota álfaminni
í ljóðum. Skoðaðu síður um tuttugustu
aldar ljóðskáldin Ísak,
Gyrði og Ingibjörgu
í höfundavef Máls og Menningar
og skoðaðu ljóð þeirra á vefnum.með
tilliti til ...
Getur þú lýst þeim þrepum sem nemendur þurfa að fara í gegnum til að ljúka verkefninu? Láttu vefritilinn þinn númera lista fyrir þig. Reyndu að lýsa atburðarás og vinnuröð nákvæmlega og eins vel og þú getur, hafðu í huga að þetta er skrifað fyrir nemendur en að aðrir kennarar geti aðlagað verkefnið að sínum þörfum..
Lýstu fyrir nemendum hvernig frammistaða þeirra verður metin. Þú getur líka vísað í matsblöð eða gefið stutt yfirlit yfir hvaða viðmið eru notuð við mat. Þú skalt tiltaka hvort gefin verður einstaklingseinkunn eða hvort hópvinna verður metin sem ein heild.
Hér skaltu hafa nokkrar setningar sem draga saman lærdóminn sem fenginn er í þessu viðfangsefni eða lexíu. Þú getur einnig varpað fram spurningum eða sett inn krækjur til að hvetja til frekara náms.
Seinast uppfært 10.maí 1999
hér er mikilvægt að hafa dagsetningu sem segir hvenær seinast var unnið í síðunni!
Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.