Tengja við kennarasíðu
Súkkulaði
http://www.ismennt.is/vefir/ari/nam/webqsukk.htm
eftir
Salvöru Gissurardóttur
Kynning Verkefni|
Bjargir | Ferli | Mat
| Niðurstaða


Kynning
Þetta er sýnishorn af WEBQUEST
verkefni fyrir nemendur á námskeiðslotunni NÁMSUMHVERFI
á VERALDARVEFNUM í KHÍ í apríl 1998.
Verkefnið gæti verið kynnt á þessa leið:
Þú ert beðin(n) um að kynna súkkulaðipáskaeggjagerð
og tala almennt um súkkulaði á næstu páskaskemmtun
hérna í skólanum og búa til veggspjald um efnið.
Verkefni
Verkefnið er fólgið í að
- Taka saman stutt yfirlit yfir sögu súkkulaðis
og lýsa skrefum í súkkulaðiframleiðslu frá
kakóbaunum til páskaeggja. Þú átt að
búa til veggspjald um framleiðsluna og taka saman á einu
A4 blaði yfirlit um sögu og þýðingu súkkulaðis
Bjargir
Nokkrar súkkulaðikrækjur á vefnum(allt
nema fyrsta á ensku)
- Súkkulaðipáskaeggjaframleiðsla
í íslenskri verksmiðju
- World
Wide Chocolates - History of Chocolate
- Emptys
page of the history of chocolate
- The
History of Chocolate @ The ShoppingPlace
- !The
Cocoa Bean @ The ShoppingPlace
- Chocolate
History
- The
History of Chocolate
- Gorant
Chocolates-Chocolate Facts
- Amber
Holmes Final Project
- Sex
Drive and a Drug Named Chocolate
- Chocolate
- Frá
Ameríku til Evrópu - frá helgidómi til almenningsnota
- saga súkkulaðis
- Chocolate
Frequently Asked Questions (FAQ)
- Chocolate
History
- Thorntons
Discovery - Chocolate
- Salware
Saga súkkulaðis
- The
Edutainment Catalog Online Family/Children's Software Catalog
- press9.html
- rec.food.recipes:
Candy
- Sarris
Candies: Chocolate Covered Easter Eggs, call 1-800-255-7771
DOLCE
ITALIA - Chocolates: Easter Eggs
Ferli
- Fyrst eru skipt í fimm manna hópa og þú
færð uppgefið í hóp þú ert
- Innan hópsins skulu þið skipa ykkur í hlutverk,
einn skoðað súkkulaði og trúarbrögð,
einn skoðar hvar súkkulaði er framleitt, einn skoðar
hvaða efni eru í súkkulaði og nútímanotkun
á súkkulaði, einn skoðar hvernig súkkulaðiegg
eru framleidd, einn skoðar hvernig súkkulaðið barst
til Evrópu og hvernig evrópumenn breyttu um framleiðsluaðferðir.
- Skoðið nú krækjurnar og efni á veraldarvefnum
og takið glósur um leið. Ef þið finnið myndefni
sem passar við þá skuluð þið vista það.
- Safnað nú saman glósunum og skrifið í
sameiningu texta á eitt blað og búið til veggspjald
um framleiðsluna.
Ráðleggingar:
- Hafðu þessar spurningar í huga
- Hvernig notuðu Mayaindjánahöfðingar súkkulaði
við helgihald?
- Hvaða efni og krydd voru súkkulaðidrykkjum mayahöfðingja?
- Hvaða þýðingu höfðu ferðir landkönnuða
á útbreiðslu súkkulaði um heiminn?
- Um kaffihúsamenningu - voru til sérstök súkkulaðihús?
- Hvernær byrjuðu menn að borða súkkulaði
(þ.e. ekki bara drekka)?
- Er súkkulaði algengt fæðuefni í dag? Hvert
er næringargildi og hollusta?
- Úr hverju er súkkulaði unnið og hvernig ?
- Hvernig er súkkulaði flutt á milli landa, hvar fara
hin ýmsu stig framleiðslunnar fram?
- Á veggspjaldinu skaltu passa að þessi atriði séu
með: Kakótréð - kakóbaunir - ristun og pressun
bauna - geymsla og flutningur milli landa - súkkulaðiframleiðslan
Mat
Þetta er hópverkefni. Samantektin verður
metin eftir því hversu skýrt og vel framsett efnið
er, hvort það er skemmtilegt og fallega frágengið
og eitthvað myndefni notað til skýringar. Veggspjaldið
verður metið eftir því hvort allir liðir framleiðsluferlis
eru, hversu skýrt og einfalt efnið er sett fram og svo verða
bæði samantektin og veggspjaldið metið eftir því
hversu vel heimildirnar á vefnum voru notaðar.
Niðurstaða
Þú getur ýmislegt lært um súkkulaði
á þessu verkefni og um framleiðsluferli almennt. Það
er löng leið frá hráefni til fullunninnar vöru.
Skoðaðu sérstaklega hvernig súkkulaðið breytist
frá því að vera kakóbaun og þangað
til það er komið í súkkulaðimola sem þú
borðar. Mörg handtök og margar vélar og flutningatæki
hafa komið við sögu á leiðinni og efni verið
tekin úr kakóbaunum en efnum líka verið bætt
við. Í gegnum aldirnar hefur þetta algenga fæðuefni
súkkulaði verið notað á mismunandi hátt
allt frá því að vera bruggaðir helgidrykkir
og svo í að vera algengt sælgæti barna.
Seinast uppfært 7. apríl 1998. Aftur
á aðalsíðu
Salvör Gissurardóttir þýddi
þetta snið frá The
Webquest Page.