Dreamweaver 4

Heim | Yfirlit| Um vefinn

Að búa til vef á Geocities

Hér er dæmi um að vefur er settur upp á Yahoo Geocities en það er aðili sem býður upp á ókeypis vefsvæði sem eru geymd á vefþjóni í USA. Þú þarf aðeins einu sinni að skrá þig inn í Geocities og setja upp tengingu í Dreamweaver við möppu á heimatölvu. Þegar það er búið þá er hægt að vinna í vefnum í Dreamweaver og búa til og prófa vefsíður og senda svo yfir í Geocities með því að tengjast og draga vefsíður sem maður vill flytja yfir á Geocities.

Vefslóð hjá Geocities og dæmi um vefsvæði þar:

: http://www.geocities.com

http://www.geocities.com/arnarholt

Athugaðu að það gengur ekki að vinna í sömu möppum í Dreamweaver 4 og Frontpage 2000, þá riðlast uppsetningar hjá Frontpage. Ef þú vilt eingöngu nota Frontpage fyrir heimasvæðið þitt hjá Ismennt þá getur þú t.d. búið til vefi á Geocities sem þú vinnur í Dreamweaver. Einnig held ég að það ætti að vera í lagi að búa til undirmöppur á heimasvæðið hjá ísmennt og hafa þar gögn sem unnin eru í Dreamweaver.

 

Yahoo Geocities er einn af þeim aðilum sem bjóða upp á ókeypis vefsvæði. Því fylgir að lítill auglýsingagluggi birtist á hverri síðu. Ýmis verkfæri eru til vefsíðugerðar og er bæði hægt að gera vefsíður með því að nota sérstök vefsíðugerðarverkfæri frá Yahoo Geocities (margir góðir bakgrunnar og tilbúnar uppsetningar) og búa til vefsíður í sínu eigin vefsmíðaverkfæri t.d. Dreamweaver 4 eða Word ritvinnslu og flytja þær síður síðan frá heimatölvu yfir á Geocities vefsvæðið. Fyrst þarf að byrja að skrá sig inn í Geocities þ.e. fara á www.geocities.com og velja Build Your Web Site! og síðan I am a new user - Sign me up! Þá þarf að velja nafn á vefsvæði (ID) og lykilorð og gefa upplýsingar m.a. um hver er að búa til vefsvæðið og hvaða tölvupóstfang viðkomandi hafi. Þegar svæðið er tilbúið birtist eftirfarandi orðsending (dæmi um notanda sem býr til vefsvæðið arnarholt) og hægt er að byrja strax að búa til vefsíður:

Ef maður vill búa til vefsíður á sinni heimatölvu og síðan senda þær inn á Geocities svæðið þá á að stilla ftp forritið á þennan hátt:

Tökum dæmi um að þú ætlir að búa til vef í Dreamweaver 4 og flytja yfir á vefsvæði sem þú hefur búið til á Geocities. Hér er dæmi um vefsvæðið arnarholt á Geocities. Á harða disknum á heimatölvunni hefur verið búin til mappan sites og undir henni mappan arnarholt. Málið er svo að tengja þessa möppu á harða disknum við vefsvæðið á Geocities. Það gerum við með að velja Site>New Site og slá inn upplýsingar um hvar gögnin eru geymd á heimatölvunni (Local Info) og hvert þau eigi að fara á Geocities vefsvæðinu (Remote Info).

Til að prófa tenginguna milli Geocities svæðisins og möppunnar á heimatölvunni þá þarftu að smella á tenginguna og grænt ljós kviknar þar þegar tenging kemst á og þú sérð hvernig vefsvæðið á Geocities (Remote host) lítur út. Nú getur þú farið í File>New File og búið til vefsíðu sem þú skalt vista undir nafninu index.htm og síðan flytja yfir á Geocities svæðið annað hvort með að draga hana yfir eða smella á hana og ýta á bláu örina. Ef það var síða fyrir á Geocities svæðinu með sama nafni þá vistast ofan í þá síðu. Ef þú vilt hafa myndir og bakgrunna á síðunum þá er sniðugt að búa til undirmöppu sem heitir myndir og vista myndir til að nota á Geocities síðunum þínum þar. Þegar þú flytur vefsíður yfir á Geocities svæðið þá kemur spurning Include Dependent Files? og þar er m.a. átt við myndir sem notaðar eru á vefsíðunni. Ef þú svarar því játandi þá eru myndir og myndamöppur fluttar og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af staðsetningu þ.e. þær fara á sömu staði og á heimatölvunni (í undirmöppuna myndir) svo allar tengingar eiga að virka. Myndir þarftu eingöngu að flytja einu sinni, ef þú ert eingöngu að lagfæra og uppfæra texta á vefsíðum og búin að flytja myndir þá getur þú svarað því neitandi og þannig sparað tíma.

Til gamans
Hægt er að notfæra sér ýmis konar verkfæri sem Geocities bjóða upp á fyrir vefsíður. Hér er dæmi um hvernig kóði er settur inn í vefskjal til að kalla á gestabók frá Geocities. Í Geocities getur maður t.d. hannað sína eigin gestabók. Síðan á að bæta nokkrum línum af html kóða í vefsíðuna sem gestabókin á að koma fram á. Afritaðu þessar línur inn í minni, farðu í Dreamweaver, opnaðu vefinn sem á að tengjast Geocities og opnaðu skjalið index.htm og farðu inn í html ham með því að ýta á F10 og farðu neðst í skjalið og límdu inn kóðann. Svo skaltu tenjast og flytja skjalið yfir á vefsvæðið hjá Geocities.