Dreamweaver 4

Heim | Yfirlit| Um vefinn

Lexía 6- Stöðluð uppsetning á vefsíðum
Templates

Að búa til uppsetningar með bakgrunni, myndum og tengingum.

Salvör Gissurardóttir

Oft er því þannig farið að við viljum að allar vefsíður í einum vef hafi einhverja sams konar hluti t.d. sama bakgrunn, sams konar leturgerðir og leturstærðir, reitir sem innihalda fyrirsagnir og meginmál séu á sama stað á öllum síðum og á öllum síðum sé tenging í forsíðu.

Þetta er auðvelt að gera í Dreamweaver með því að búa til sérstök snið eða uppsetningu (template) fyrir vefsíður. Tökum dæmi um að við ætlum að búa til uppskriftabanka fyrir kökuuppskriftir. Á hverri síðu viljum við hafa tengingu í forsíðuna (vefsíðu sem við skulum kalla index.htm) efst til hægri og líka neðst á skjánum og svo viljum við hafa eitthvað smámyndir til skrauts og bakgrunn og fyrirsögn með ákveðnu letri og meginmál með ákveðnu letri.

Til að búa til slíka uppsetningu (template) ferðu í File>New og býrð til síðusnið t.d. eins og hér fyrir neðan, best er að vera í útlitsham (layout view) þegar þú hannar svona útlit á síðu. Hér eru fjórir reitir, einn fyrir tengingu í forsíðu og smámyndir sem eiga að birtast á öllum síðum, einn fyrir fyrirsögn, einn fyrir meginmál og einn neðst á síðu fyrir tengingu í forsíðu. Veldu einhvern bakgrunn, settu inn myndir og tengingar og breyttu leturgerð og leturlit á fyrirsögn og meginmáli eins og þú vilt hafa á öllum síðum.

Vistaðu svo síðuna sem uppsetningu þ.e. File>Save as Template og gefðu uppsetningunni nafnið uppskriftir.

Í byrjun þegar þú vistar uppsetningu þá eru öll svæði læst þ.e. ekki er hægt að skrifa í þau. Áður en þú byrjar að nota þessa uppsetningu verður þú að tiltaka hvaða svæði má skrifa í en það eru í þessu tilviki svæðin fyrir fyrirsögn og uppskriftina sjálfa. Þetta gerir þú svona: Smelltu á fyrirsagnarreitinn (þannig að hann verði blár og punktar í hornum sjáist) og veldu Modify>Template>New Edible Region. Þá þarftu að gefa svæðinu nafn. Opnaðu á sama hátt svæðið þar sem uppskriftin sjálf á að koma. Vistaðu svo uppsetninguna aftur og nú er hún tilbúin til notkunar með tveimur svæðum sem hægt er að setja texta í en að öðru leyti fastmótað útlit og uppsetning.

Skoðaðu vesíðu með þessari uppsetningu:

Eplakaka   eplakaka.html

Gott er að skipuleggja vinnuna þannig að hver nýr vefur er í sérstakri möppu. Vertu í Sites og gerðu nýja möppu Files>New Folder sem þú vilt geyma allar uppskriftasíður í.

Þegar þú vilt gera nýja síðu sem notar þessa uppsetningu þá velur þú File>New from Template og velur uppsetninguna uppskriftir. Nú getur þú búið til nýja síðu og skrifað inn í tvö svæði á hverri síðu þ.e. fyrirsögn og uppskrift. Gerðu núna þrjár eða fleiri síður sem nota upp sömu uppsetningu (template) og vistaðu undir viðeigandi nafni t.d. eplakaka.html, skuffukaka.html og vofflur.html

Athugaðu að ef þú þarft að komast í uppsetninguna og breyta henni seinna þá getur þú haft einhverja síðu sem notar uppsetninguna opna og farið í Modify>Template>Open Attached Template. Ef þú breytir uppsetningunni þá breytast allar vefsíður sem nota þessa uppsetningu.

Ljúktu nú við að gera uppskriftavefinn. Gerðu vefsíðu index.htm og vistaðu í sömu möppu og allar uppskriftasíðurnar. Þessi síða á að vera forsíða og efnisyfirlit. Ef það er til vefsíða index.htm eða index.html í einhverri möppu þá bæði er mappan læst þá nægir að gefa upp slóð að möppunni t.d. www.ismennt.is/not/notendanafn/uppskriftir ef þú hefur búið til möppu sem heitir uppskriftir og í henni er vefsíða index.htm. Gerðu tengingar úr þeirri síðu í einstakar uppskriftir:

Þú getur svo flutt möppuna með einstökum uppskriftum og yfirlitssíðunni í einu lagi yfir á vefsvæðið þitt á vefþjóni.

Æfing í uppsetningum

Gerðu uppsetningu með bakgrunn, myndum og tengingum og einhverjum svæðum sem hægt er að skrifa á. Vistaðu uppsetninguna og notaðu til að gera 1-3 vefsíður. Þú getur gert eitthvað verkefni sem tengist því sem þú vinnur við eða finnst skemmtilegt t.d. verkefnabók í dönsku, brandarabanka, draugasöguvef, leikjavef, umsagnir um bækur, kvæðabók, listaverkabók.