Salvör Gissurardóttir 25.mars 1998

Páskaföndursíða

Páskaföndur - Diskamotta með eggi

Hér er hugmynd að skreytingu fyrir páskaborðhaldið

Klipptu nokkrar diskamottur úr kartonpappír eins og egg í laginu og í þeim lit sem þér finnst passa best á páskaborðið þitt. Diskamotturnar eiga að vera um það bil 45 sm breiðar og 30 sm háar.

Klipptu eggjaskurn úr hvítu kartoni og unga úr gulu kartoni eftir vinnuteikningunum hér fyrir neðan. Teiknaðu auga á ungann með mjóum svörtum tússpenna, klipptu út gogg úr appelsínugulu kartoni og límdu gogginn fyrir neðan augun.

Settu ungann inn í eggjaskurnina en láttu vængina vera fyrir utan. Límdu neðsta hluta ungans við skurnina og límdu svo eggið með unganum fast á diskamottuna. Svo getur þú líka skrifað nafn á eggjaskurnina og þá er komið fínasta borðkort!

Stuðst við hugmynd úr föndurtímariti