Salvör Gissurardóttir 25.mars 1998

Páskaföndursíða

Páskaföndur - einfalt föndur

Páskastrákur og páskastelpa

Hér á myndinni sérðu páskakrakka sem ung börn geta gert. Þú þarft gult karton og svolítið af svörtu, bláu og rauðu.

Klipptu út tvo unga úr gula kartoni, láttu þá vera eins og tölustafinn átta í laginu. Klipptu út svartar og rauðar slaufur, svartan hatt og bláa hringi fyrir augu. Klipptu út fætur, hendur og gogga og límdu á ungana.

Það er líka auðvelt að gera páskatúlipana eins og sést á myndinni.


Málaðar eggjaskurnir

eggjaskurnamálun

Krökkum finnst gaman að mála á eggjaskurnir, það er auðvelt og fljótlegt. Skurnirnar verða helst að vera sem næst hálfu eggi eða meira svo þær líkist litlum bjöllum.

Krakkarnir mála skurnirnar í öllum regnbogans litum og geta líka límt á þær ýmis konar doppur. Svo er gert gat og spotti settur þar í. og skurnin hengd á spotta á grein.