Salvör Gissurardóttir 25.mars 1998

Páskaföndursíða

Páskaföndur - litlir ungar í eggjum

Þú getur búið til unga bæði í hálfum eða heilum eggjaskurnum en það er fallegt að búa til nokkra af hverri gerð og hengja þá á grein. Greinina getur þú svo heng á vegg eða sett í vasa á borð.

Ungar í hálfum eggjaskurnum

Klipptu tvær hálfar eggjaskurnir úr hvítum kartonpappír og einn unga úr gulum pappír og svo gogg úr appelsínugulum pappír eins og vinnuteikningin hér fyrir neðan sýnir. Teiknaðu augu með mjóum svörtum tússpenna og límdu gogginn undir augun. Mundu að líma aðeins neðri hlutann af gogginum við, annars getur hann ekki opnast og lokast. Límdu svo báðar eggjaskurnina sitt hvoru megin við ungann, beygðu vængina á honum örlítið fram á við og settu svo þráð í hann til að hengja upp.

Ungar í heilum eggjaskurnum

Klipptu úr tvær heilar eggjaskurnir í hvítan kartonpappír og einn unga úr gulum pappír og gogg úr appelsínugulum pappír. Teiknaðu augu og límdu gogginn fyrir neðan augun á sama hátt og við unga í hálfum eggjaskurnum. Settu svo ungann í eggjaskurnina sem hefur stærri holu og límdu hina við svo kantarnir passi saman. Beygðu vænginn örlítið fram og settu þráð í eggið til að hengja það upp.

Stuðst við hugmynd úr föndurtímariti