Salvör Gissurardóttir 25.mars 1998
Páskaföndur - Alls konar egg Laukalituð egg
![]()
![]()
Brúnt og fjólublátt laukahýði litar egg í fallegum jarðlitum.
Hér er hugmynd um nokkurs konar batik þar sem notuð eru laufblöð, grjón og laukhýði.Settu klút á borð, ofan á hann nokkur lög af laukhýði. Settu nokkur hrísgrjón og lítil laufblöð ofan á laukhýðin. Efst skaltu svo setja egg og síðan laukhýði ofan á eggið. Vefðu svo klútnum þéttingsfast um eggið. Settu nokkrar teygjur utan um eggið svo það haldist á réttum stað og laukhýðin pressist vel að egginu. Nú skaltu setja eggjaböggulinn í vatn og láta hann sjóða í 30 mínútur. Taktu það svo upp úr vatninu og fjarlægðu umbúðirnar. Þegar eggið er þurrt getur þú nuddað á það jurtaolíu svo það glansi.
Batikegg
Áhöld og efni: egg, kreppappír, heitt vatn, ein matskeið af hvítu ediki, kerfi, lauf, sokka, eldspýtur
Skreyttu nú eggin með mörgum lögum af vaxi og lit. Byrjaðu á ljósasta litnum (t.d. gulum). Dýfðu egginu í litinn þangað til rétta litblænum er náð. Þurrkaðu með eldhúspappír.
![]()
Þú getur notað annað hvort hrá eða soðin egg. Þú getur blásið egg með því að stinga lítil göt báðum megin og blása inn í annað. Ef egg eru blásin þá getur þú notað innihald eggjanna í matargerð en mundu að þá verða eggin mjög brothætt. Föndur með blásin egg hentar ekki fyrir yngri börn.
Búðu til lit með því að taka um 2 sm breiðan kreppappír og setja í skál. Helltu sjóðandi heitu vatni yfir (fullorðnir verða að gera þetta). Taktu nú pappír út og bættu í einni matskeið af ediki. Láttu litinn svo kólna.
Kveiktu nú á kerti (fullorðnir) og láttu vax leka á þá staði á egginu sem þú vilt að haldist gulir. Settu nú eggið í dekkri lit og þurkaðu svo með eldhúspappír. Athugaðu að það getur tekið nokkrar mínútur að fá fram rétta litinn.
Til þess að fjarlægja vaxið af egginu (fullorðnir) skaltu setja egg í ofn á meðalhita. Þegar vaxið er bráðnað eftir örfáar mínútur skaltu þurrka eggið með eldhúspappír.
Svona til tilbreytingar getur þú búið til laufamynstur á eggin svona: Settu lítil laufblöð á eggið og svo þau haldist skaltu vefja eggið inn í hluta af ónýtum nælonsokk og binda um teygju. Dífðu svo egginu í lit og þurrkaðu burt umframlit með eldhúspappír og þegar eggið er þurrt skaltu fjarlægja umbúðirnar svo mynstrið komi í ljós.
Egghausar
Áhöld og efni: harðsoðin egg, alfalfa eða önnur fljótsprottin fræ, bómull, tússlitir.
![]()
Málaðu andlit á eggjaskurnina. Varaðu þig, eggin eru brothætt.
Brjóttu gat efst á eggjaskurnina (best er að fullorðnir geri þetta) og fjarlægðu eggið úr skurninni.
Fylltu svo tómu skurnina með bómull.
Sáðu alfalfafræjum efst í bómullina og vökvaðu vel.
Settu þunn lag af bómull yfir og settu eggjaskurnina út í glugga. Fræin spíra eftir einn eða tvo daga og halda áfram að vaxa í þrjá eða fjóra daga. Vökvaðu bómullina daglega og fjarlægðu efsta lagið af bómull þegar spírurnar eru komnar upp því þá stendur "hárið" á egghausnum beint upp í loftið.
Hugmynd um egghausa, laukalituð og batiklituð egg er tekin úr áströlsku föndurblaði en eftirfarandi hugmyndir eru lauslega þýddar úr föndurblaðinu Hobby-Nyt 2/97:
Rifrildisegg
![]()
Notaðu egg úr bómull og límlakk.
Rífðu smástykki eða ræmur af pappír sem verður hvítur í sárið þegar hann er rifinn. Passaðu að snúa pappírnum þannig að hliðin sem er með hvíta rifjaðrinum sjáist. Nú skaltu dreifa föndurlímlakki á eggið og líma rákir eða mósaikmynstur á eggin. Límdu bara á lítinn hluta í einu. Láttu límið þorna og haltu svo áfram. Það er best að vera að vinna með nokkur egg í einu, láta þau þorna í tómum eggjabakka á milli. Seinast skaltu lakka eggin með límlakki,þá verða þau glansandi.Sandegg
Teiknaðu mynstur á venjuleg egg með mjúkum blýanti.
Nú skaltu smyrja plexilími eða föndurlími á lítið svæði í einu, dreifðu lituðum sandi á það og hristu burt sandinn sem ekki festist.
Láttu eggið þorna eða þurrkaðu það með hárblásara.
Það er mikilvæg að límið þorni áður en þú málar næsta svæði með sandi.
Haltu áfram þangað til allir fletir á egginu eru þaktir sandi.
Þú skalt enda á að sprauta einni umferð af þunnu úðalakki (spraylak) yfir eggið.Leiregg
Búðu til leiregg með því að hnoða tvær litlar kúlur og búðu svo til skál úr hverri kúlu.
Skálin á að vera um 1/2 sm þykk. Þrýstu svo báðum skálunum saman og búðu þannig til egg. Klappaðu eggið nú svo það verði slétt. Gerðu mynstur í eggið með pinna eða prjóni. Gerðu gat á annan enda eggsins ef þú ætlar að hengja það upp. Nú skaltu láta leireggið þorna í eggjabakka. Þú getur litað eggið með því að nudda smávegis af litadufti í bómullartusku og nudda eggið með klútnum. Passaðu að liturinn fari ekki niður í mynstrið.
Egg máluð með eyrnapinna
Notaðu egg úr pappa. Fyrst skaltu mála eggin í einhverjum grunnlit og svo getur þú skreytt þau með blómum sem eru máluð með eyrnapinna og tannstönglum. Notaðu föndurliti t.d. Pebeo Deco.
Tréegg.
Brenndu mynstur í tréegg. Brenndu strik og doppur.
Filtegg
Þú þarft ullarflóka til að búa til filtegg.
Í hvert egg þarf 15-20 grömm af ull.
Blandaðu sápuvatn - 1. dl. sápuspænir og 2 1/2 lítrar af volgu vatni.
Sápuspænirnir eiga að vera alveg uppleystir en mega ekki freyða.
Rúllaðu helming af ullinni í kúlu, settu svo meiri ull utan á og dýfðu í sápuvatnið og hnoðaðu ullina þangað til hún hefur fengið rétta stærð og áferð. Þegar eggin eru þurr getur þú saumað út í þau.
Vaxbatíkegg
Bræddu leifar af býflugnavaxi í vatnsbaði.
Gerðu einföld mynstur á egg með heitu vaxinu. Litaðu eggið.
Bræddu vaxið utan af egginu með kertaljósi, hafðu eggið til hliðar við logann, ekki ofan á því þá verður það svart. Bræddu bara svolítið í einu, þurrkaðu það af og bræddu svo meira þangað til allt vaxið er farið.