|
Þessari umsókn var hafnað Til Nýsköpunarsjóðs námsmanna, Reykjavík, 30. mars 1995 Efni: Umsókn um styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna
Nafn: Salvör Gissurardóttir, lektor Heiti verkefnis: NETNÁM - námsumhverfi á veraldarvefnum Stutt lýsing á verkefninu Umsjónarmaður er lektor við Kennaraháskóla Íslands. Verksvið umsjónarmanns þar er upplýsingartækni og tölvunotkun í námi og kennslu. NETNÁM eða rannsóknir og þróunarstarf tengd veraldarvefnum (WWWW - World Wide Web) og notkun hans í námi og fræðslu eru aðalrannsóknarverkefni umsjónarmanns á þessu ári. Umsjónarmaður hefur þegar prófað ýmsar útfærslur á WWW efni hér innanlands og tek þátt í evrópsku samstarfi um rannsóknaráætlun (Project Proposal WINDER) á þessu sviði og norrænu samstarfi (umsókn til NorFa WWW Based Learning Environments). Áherslan í rannsóknarverkefninu NETNÁM er jafnt á að búa til frumgerð sem og að rannsaka námstækni þeirra sem nota þá frumgerð. Verkefnið verður unnið í samráði við Sigurjón Mýrdal, forstöðumann Fjarskóla Kennaraháskóla Íslands og er stefnt að því að prófa efnið í tengslum við fjarkennslu kennaraefna. Núna er veraldarvefurinn fyrst og fremst notaður sem auglýsingar- og kynningarefni en mikill óplægður akur er að nota þetta miðlunarform við nám og kennslu. Til Nýsköpunarsjóðs námsmanna er fyrst og fremst leitað vegna fyrsta þáttar þessar verkefnis, það er undirbúningsvinnu við að búa til frumgerð, sérstaklega söfnunar á dæmum um erlent kennsluefni á veraldarvefnum, uppsetningarvinnu við íslensk sýnidæmi og framsetningar á námsgögnum og leiðbeiningum um HTML forritun. Markmið og framkvæmd: Markmiðið er að búa til íslenska frumgerð
af námsumhverfi á Internet sem notar veraldarvefinn (WWW)
sem notendaskil og vísar þaðan í vefskjöl
(HTML) sem og annars konar gagnagrunna, spjallrásir og hlutverkaleiki,
tölvupóst og tölvuráðstefnur. Gert er ráð
fyrir að veraldarvefurinn verði notaður sem einföld og
ódýr leið til að afla upplýsinga en jafnframt
verði nýttir þeir möguleikar sem bjóðast
þar til gagnvirkni. Ekki er kunnugt um að slíkt námsumhverfi
sé í notkun á Íslandi en vísir að
kennsluefni um Internet hefur verið sett upp bæði á
menntanetinu og háskólanetinu. Notkun á veraldarvefnum
fer nú vaxandi hér sem erlendis og möguleikar virðast
miklir bæði til fjarkennslu sem og til endurmenntunar og starfsþjálfunar
á vinnustöðum. Hlutverk námsmanns: Námsmaður verður að geta unnið sjálfstætt og ekki er síður mikilvægt að hann(hún) geti lært sjálfstætt og fundið lausn á vandamálum upp á eigin spýtur. Þar sem þetta er á svo nýju sviði að harla ólíklegt er að námsmaður finnist sem hefur reynslu á þessu sviði þá er gert ráð fyrir að allt að einn mánuður fari í þjálfun undir handleiðslu umsjónarmanns. Viðfangsefni námsmanns verða m.a. gagnasöfnun á ýmis konar gögnum (texti, myndir, forrit), breyting gagna í rafrænt form svo sem innsláttur, skönnun (skanna inn myndir, breyta myndefni í form sem hægt er að nota á WWW (jpeg, gif, interlaced gifs)) og framsetning gagna í veraldarvefnum (setja upp texta og myndir í HTML skjöl um tæknilegri vinna eins og að forrita skjöl sem nota eyðublöð (form) eða eru að einhverju leyti gagnvirk. Jafnframt verður unnið að samningi á handbók eða leiðbeiningum fyrir þá sem vilja setja kennsluefni upp í veraldarvefnum með því að safna saman sýnidæmum. Sú handbók getur bæði verið á vefnum sem og á pappír. Nauðsynleg menntun námsmanns: Námsmaður verður að vera kominn áleiðis í háskólanámi og þekkja til Internets eða a.m.k. hafa brennandi áhuga á að setja sig inn í það umhverfi. Námsmaðurinn verður að hafa töluverða reynslu af tölvuvinnu (svo sem ritvinnslu, vinnu í Windows eða macintosh umhverfi) og vera fljótur að læra á ný forrit/tölvuverkfæri. Æskilegt er að námsmaður kunni á teikniforrit eins og PhotoShop og hafi einhverja kunnáttu í forritun. Æskilegt er að námsmaður komi úr námsgrein þar sem lögð er áhersla á þekkingarleit og miðlun þekkingar svo sem kennslu- og uppeldisfræði, fjölmiðlafræði, sagnfræði, sálfræði, félagsfræði, bókmenntum, stjórnmálafræði, heimspeki. Fjöldi mannmánuða: Ég sæki hér með um 5 mannmánuði þ.e. tvo starfsmenn í allt sumar vegna þessa verkefnis. Mótframlög: Ég hef sótt um styrk til ýmissa aðila m.a. Tæknisjóðs. Ég hef einungis fengið svar um einn styrk en það var svo smávægileg upphæð að ég geri ráð fyrir að nota það fé til að kaupa Internet verkfæri. Ef jákvætt svar kemur frá þeim aðilum sem ég hef sótt um styrk til þá er svigrúm til að greiða hærra kaup, að öðrum kosti ekki. Virðingarfyllst, |