Frétt í Morgunblaðinu 1992
Miðvikudaginn 15. júlí, 1992 - Innlendar fréttir
Grunnskólarnir kaupa tölvur
SAMNINGUR við Örtölvutækni um kaup á PC tölvum fyrir grunnskóla Reykjavíkur og samningur við Íslenska menntanetið hf. um tengingu grunnskólanna við tölvukerfi Menntanetsins voru undirritaðir fyrir hönd Reykjavíkurborgar í síðustu viku. Í fréttatilkynningu frá Skólaskrifstofu Reykjavíkur segir að þessir samningar marki tímamót í starfi grunnskólanna í Reykjavík.
Hingað til hafi engin ákveðin stefna ríkt í tölvuvæðingu skólanna, heldur hafi verið keyptar vélar af ýmsum gerðum og af ýmsum söluaðilum. Nú hafi verið mörkuð sú stefna að skólarnir verði búnir tölvum sem falli undir PC-staðal, og að vélarnar verði í framtíðinni tengdar í tölvunet innan skólans.
Í haust verða sett upp netkerfi í alla grunnskóla sem eru með unglingadeildir, og munu þessir skólar hafa yfir að ráða 12 vinnutölvum af PC-gerð. Grunnskólar sem eru með yngri deildir verða tölvuvæddir eftir áramót og er stefnt á að tölvukostur þeirra verði aukinn í 8 vélar í hverjum skóla.
Þá segir í fréttatilkynningunni að með tölvuvæðingunni og tengingu véla hjá grunnskólunum við tölvukerfi Menntanetsins sé einangrun skólanna rofin, þar sem nemendur geti með tengingu við menntanetið haft tölvusamskipti við aðra nemendur bæði hérlendis og erlendis. Nokkur verkefni, sem hafa nýtt tölvusamskipti, hafa þegar verið unnin í grunnskólum.
Marínó Þorsteinsson hjá Innkaupastofnun, Heimir
Sigurðsson framkvæmdastjóri og Tryggvi Þorsteinsson sölustjóri
hjá Örtölvutækni hf., Ólafur H. Guðgeirsson
Skólaskrifstofu, Markús Örn Antonsson borgarstjóri
og Árni Sigfússon formaður Skólamálaráðs