Fyrsta námskeiðið í vefsíðugerð var í Kennaraháskóla Íslands í desember 1994. Það var haldið að frumkvæði SG og TH, kennari var Guðmundur Ragnar Guðmundsson og þátttakendur voru nokkrir kennarar við Kennaraháskólann. Guðmundur Ragnar hafði fyrr á árinu kynnt Lynx fyrir einstökum kennurum. Í byrjun árs 1995 leiðbeinti Jón Jónasson á fjarnámskeiði um HTML vefsíðugerð og er eftirfarandi bréf skrifað af Salvöru Gissurardóttur inn á póstlista á því námskeiði.

Date: Wed, 18 Jan 1995 19:08:48 +0000 (GMT)
Cc: salvor@ismennt.is (Salvor Gissurardottir)
X-Mailer: ELM [version 2.4 PL23]
MIME-Version: 1.0
Content-Type: text/plain; charset=iso-8859-1
Content-Transfer-Encoding: 8bit
Content-Length: 1442
Status: RO

Kynning v. námskeiðs í html

Halló Jón og allir vefaranemar!

Ég heiti Salvör Gissurardóttir er er lektor við Kennaraháskóla

Íslands. Ég hef verið þar undanfarin fjögur ár en áður var ég námstjóri í tölvufræðum í Menntamálaráðuneytinu og framhaldsskólakennari í mörg ár. Ég hef aðallega kennt ýmis konar tölvutengt efni, byrjaði kennsluferilinn á að kenna tölvubókhald og viðskiptalega tölvunotkun en færðist svo nær kennslufræðilegri notkun og tók framhaldsnám íkennslutækni og námsefnisgerð á tölvur (Instructional Design and Technology, Computer Application).

Ég hef fylgst með þróun á WWW og fylgitækjum á netinu í langantíma en það var fyrst í sumar á námskeiði út í Edinborg sem ég hafði raunverulega góðan aðgang að myndrænni framsetningu á efni í WWW og háhraðasendingum. Ég hef að vísu haft aðgang að Lynx í eitt ár en það er svo ósköp stirðbusalegt ef borið er saman við Mosaic eða Netscape. Ég hef prófað að búa til eigin html síður og skannað inn myndir til notkunar á þeim og takið myndir úr íkonasöfnum á WWW. Þetta hefur gengið ágætlega en hins vegar hafa síðurnar mínar verið á lokalnetinu í KHÍ og aðeins aðgengilegar þar. Ég kann ekki enn að færa þetta á menntanetið. Annars fer mest af tímanum hjá mér í að skoða aðrar vefsíður og reyna að tengja mig við staði sem ég held að hafi áhugavert efni. Ég er semsagt alltaf komin út um víðan völl...

Hlakka til að taka þátt í námskeiðinu og vinna með ykkur

Salvör