Vilborg Ragnarsdóttir 1999
Tölvur í leikskóla
Fyrir
um 15 - 20 árum hefði líklega fáum hugkvænst
að vinna með tölvur inn á deild með leikskólabörnum,
en í dag er öldin önnur. Með aukinni tæknivæðingu
og almennri tölvunotkun bæði í fyrirtækjum
og inni á heimilum, kallar það á að börn
fái líka tækifæri til að kynnast og vinna
með slík tæki. Þetta er framtíðin, af
hverju ekki að kynna hana fyrir börnunum strax í upphafi
skólagöngunnar. Rannsóknir hafa líka sýnt
að strákar og stelpur sækja jafnt í tölvurnar
á leikskólaaldri en þegar komið er ofar í
skólakerfið eru það strákarnir sem frekar
sækja í þær. Þetta mundi líklega
breytast ef að tölvurnar væru kynntar fyrir börnunum
fyrr (strax í leikskóla). (Haugland, Sue, 1993).
Í tengslum við kynja mun í tölvunotkun þarf
líka að hafa í boði forrit sem höfða til
stelpna, til að auka áhuga þeirra á tölvum.
(NAEYS Position Statement: Technology and …, 1996).
Það er ekki sama hvernig unnið er með tölvurnar,
mikilvægt er að það sé gert á skapandi
og uppbyggilegan hátt. (Haugland, Sue, 1993).
![]()
Oft heyrast gagnrýnis
raddir þegar talað er um börn og tölvur. Sagt er
að tölvur séu ópersónulegar vélar
sem ræni börnin æskunni. Menn eru hræddir um
að hún komi í staðin fyrir annan þroskavænlegan
efnivið sem börnunum býðst. En það má
auðvitað segja að ef annar efniviður, t.d. kubbar eða
heimiliskrókur, er eingöngu notaður er sama hættan
fyrir hendi, það er að barn einangri sig við hann
og fari á mis við þann þroskamöguleika sem
annar efniviður býður upp á. (Haugland, Sue, 1993).
Mikilvægt er að leikskólakennarar hafi einhverja þekkingu
á vali á hugbúnaði
fyrir börnin og að leikskólakennarar séu einnig
meðvitaðir um það hvaða áhrif talvan hefur
fyrir þroska barnsins.
Heimildir:
Haugland, S. (1993). Are Computers an Important Learning Resource? Day care and