Hugmyndabrunnur og ráðleggingar til þeirra sem vilja nota tölvur með ungum börnum
Salvör Gissurardóttir frumgerð 11. maí 1999 - uppfært seinast 22-apr-01

Á valnámskeiðinu Tölvur í leikskólanum sem haldið var í fyrsta skiptið 1999 kynntust nemendur á leikskólaskor KHÍ hvernig mögulegt er að nota teikniforrit í vinnu með börnum, prófuðu og lærðu á Kidpix Studió forritið undir handleiðslu Svölu Jónsdóttur. Þetta var fyrsta námskeiðið af þessu tagi í leikskólaskor KHÍ og má segja að með þessu námskeiði hafi tölvur og netsamskipti fyrst komið af fullum þunga inn í nám leikskólakennara á Íslandi. Á þessu námskeiði var eins og á öðrum tölvunámskeiðum sem tengjast kennslu og uppeldisfræði ekki markmið í sjálfu sér að nota tæknina, það sem skipti máli var að fella tækni inn í hefðbundið leikskólastarf og prófa að nota teikniforrit sem skapandi verkfæri í vinnu með börnum.

Vísir að verkefna- og hugmyndabanka

Á námskeiðinu fengu nemendurnir einnig tilsögn og æfingu í að leita að efni á vefnum og setja fram ritsmíðar sínar á aðgengilegu formi fyrir vefinn. Var þar miðað við að leikskólar munu væntanlega fljótlega vilja kynna atburði, reglur, áætlanir og þema sem unnið er að fyrir foreldrum. Fengu nemendur tilsögn í að setja upp persónulegar heimasíður og að setja upp skýrslur, ritgerðir og verkefnahugmyndir á vef. Með því að tengja þessar hugmyndir saman á þessari vefsíðu er kominn vísir að verkefna- og hugmyndabanka um hvernig foreldrar og leikskólakennarar geta notað tölvur og þá sérstaklega teikniforrit með ungum börnum. Á þessari síðu eru myndir unnar í Kidpix af nemendum sem sýna viðfangsefni nemendanna og einnig er tenging í verkefnasíður og heimasíður hvers nemenda. Einnig er vísun í safn af tengingum um tölvur í leikskólastarfi m.a. um teikniforrit fyrir börn og vísun í vefsíðu námskeiðins Tölvur í leikskólanum 1999. Einnig er vísun í heimasíður nemendanna sem voru á námskeiðinu og er bent á vefsíður Valborgar og Önnu Bjargar sem dæmi um nemendasíður.


Þórdís gerði teiknimyndasögu um Ogga orm í Kidpix þar sem áherslan
er á liti og form og umbreytingu í náttúrunni.
Að nota sama grunninn og útfæra margar myndir út frá honum. Grunnmynd er teiknuð og út frá henni eru gerðar nokkrar útgáfur af sömu mynd. Börnin læra þannig að þau geta gert margar myndir út frá sama grunni og haldið endalaust áfram að breyta og lagfæra
Vefsíður nemenda á valnámskeiði jan-feb 99
um tölvur í leikskólanum
Irpa

Þórdís

Sólveig

Björg

Guðbjörg

Ragnhildur myndir1 myndir2

Valborg myndir1 myndir2 myndir3

Linda Hrönn

Erna Rós

Anna Björg

Hér eru dæmi um viðfangsefni sem er árstíðir og andstæður, það sem er hollt og það sem er óhollt og myndir þar sem hægt er að skipta um liti á stórum myndflötum og prófa mismunandi liti og mynstur.

Linda og Irpa Sjöfn teiknuðu saman myndasögu úr umferðinni.


 


Hér eru nokkrar myndir úr teiknimyndasögu eftir Valborgu er um geimverur. Hér eru myndunum breytt eftir þörfum, það er hægt að nota sömu myndina aftur og aftur með smá breytingum eða búa til nýjar myndir og úr verður teiknimyndasería.

 
 

Syngja og hlusta á ljóð - teikna mynd í Kidpix.
Börn hafa gaman af því að búa til mynd sem sýnir upplifun barnsins á tilteknu ljóði. Hér er hugmynd frá Irpu Sjöfn um hvernig börnin hlusta á og syngja kvæðið Dansi, dansi dúkkan mín og gera svo myndir.

Þema - Hafið

Erna Rós setti upp verkefni þar sem vinna á með hafið sem þema. Þannig gæti verið með börnin í fjöruferðir og kynna fyrir þeim ýmis lög og vísur um hafðið.

Andstæður

Hægt er að nota Kidpix til að teikna upp andstæður, til dæmis heitt og kalt og hvítt og svart. Þessar andstæður geta verið heitt og kalt, dagur og nótt svo eitthvað sé nefnt. Hér er dæmi um verkefni hjá Ernu Rós þar sem gert er ráð fyrir að börnin fengju að vinna með tvö efni sem væru algjörlega svart og hvítt. Þær andstæður sem Erna Rós valdi eru heitt og kalt þannig að börnin þyrftu að finna út hvað tilheyrir köldu og hvað heitu. Það værir tilvalin leið til að fá þau til þess að velta fyrir sér ýmsum möguleikum og komast að niðurstöðu hvað ætti heima í hverjum hóp. Erna Rós telur að þetta sé góð leið til þess að tengja myndsköpun við daglega lífið.

 

Kynjaveröld

Sólveig Lilja gerir kynjaverur og bíla með andlit.

  Heimspeki handa börnum
Björg Hrund sýnir dæmi um verkefni þar sem saga er lesin fyrir börnin og þau ræða söguna og boðskap hennar og teikna síðan mynd. Björg tekur dæmi um söguna Búkolla.
 

Teiknað með stimplum

Anna Björg prófar stimpilmyndir með hreyfingu en möguleikar kidpix forrits eru miklir. Hér er dæmi um eru notaðir stimplar aðeins úr jurtaríkinu. Nú er búið að bæta við blómaramma utan um myndina. Síðan er hægt að flytja þessar myndir í kidpix yfir í ramma og fá inn á myndina fljúgandi fugla, fiðrildi og fleira


Sýnishorn af vinnu nemenda í leikskólaskor Kennaraháskóla Íslands
á námskeiðinu Tölvur í leikskólanum vorið 1999
Kennarar námskeiðsins voru Kristín Nordal (umsjónarmaður), Salvör Gissurardóttir og Svala Jónsdóttir. Svala Jónsdóttir annaðist kennslu í Kidpix Studio. Salvör Gissurardóttir kennslu í vefsíðugerð og leiðbeinti nemendum um hvernig þeir gætu gert heimasíður fyrir leikskólakennara, ritgerð um teikniforrit og tölvur í leikskólastarfi og sýnishorn af teikningum í Kidpix Studio.

Ritgerð um teikniforrit     teikningar Þórdís
 Ritgerð um teikniforrit      teikningar Linda Hrönn
 Ritgerð um teikniforrit        teikningar  Irpa Sjöfn
 Ritgerð um teikniforrit       teikningar1 teikningar2 Ragnhildur
 Ritgerð um teikniorrit       Hulda
 Ritgerð um teikniforrit      kidpix1 kidpix2  teikningar  Valborg
 Ritgerð um teikniforrit      heimspeki (ath vantar síðu um söng)  Björg Hrund
 Ritgerð um teikniforrit      teikningar Guðbjörg
 Ritgerð um teikniforrit Sólveig
 Ritgerð um teikniforrit  teikningar Erna Rós
 Ritgerð um teikniforrit      teikningar    Anna Björg

 

Tengingasafn:

Dæmi um heimasíður leikskóla 2001

Námskeið í Leikskólaskor um tölvur

Nemendaverkefni um Kidpix frá öðrum námskeiðum

Allar myndir á þessum vef eru gerðar af nemendum á námskeiðinu 1999 í Kidpix og færðar yfir í vefform að undanskilinni myndinni ef barninu að lita efst á síðunni. Sú mynd er fengin úr Art/oday. Myndirnar eru smækkaðar og búnar undir birtingu á vef með aðstoð myndvinnsluforritsins FireWorks4. Höfundarréttur á myndum og ritsmíðum er hjá einstökum nemendum. Tröllamyndir eru teknar úr vefmyndasafni. Svala Jónsdóttir og Kristín Nordal kennarar í leikskolaskor lögðu grunninn að kennslufræðilegu inntaki á verkefnum nemenda í Kidpix.


 Salvör Gissurardóttir gerði þennan vef. Pósfang er salvor@ismennt.is

Frumgerð var gerð 1998 en seinasta uppfærsla var 22-apr-01