Hér á eftir koma nokkrar hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með teikniforritið Kid Pix.
1. Að nota sama grunninn og útfæra margar myndir út frá honum. Grunnmynd er teiknuð og út frá henni eru gerðar nokkrar útgáfur af sömu mynd. Börnin læra þannig að þau geta gert margar myndir út frá sama grunni og haldið endalaust áfram að breyta og lagfæra.
Mynd 1. Grunnmyndin
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 1. Grunnmynd
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Hérna eru rauði karlinn og græni karlinn. Rauði
karlinn á heima á efri hæðinni í þessu umferðar-
ljósi og græni karlinn
á neðri hæðinni.
Rauði karlinn var í vondu skapi. Börnin hlupu
alltaf yfir götuna án þess að stoppa og bílarnir voru
næstum búnir að
keyra yfir þau.
Rauði karlinn ákvað því að fara og tala við
börnin. Hann vonaði að þannig gæti hann kennt
börnunum umferðarreglurnar.
Rauði karlinn fór til barna sem ætluðu að hlaupa yfir
götuna. Hann sagði þeim að göturnar væru
hættulegar og bílarnir gætu keyrt á þau. Börnin
ættu að stoppa þegar hann væri í ljósinu en þau
mættu fara yfir þegar
græni karlinn væri kominn í ljósið.
Börnin þökkuðu rauða karlinum fyrir og fóru að
gangbrautinni. Þar biðu þau þar til græni
karlinn kom. Þá gengu þau yfir götuna
og vöruðu sig á
bílunum eftir það.
Nú var rauði karlinn glaður. Hann var búinn að
kenna börnunum umferðarreglurnar og þau hlupu
ekki lengur yfir götuna.
Gulur
Blár
Rauður
Ferhyrningar
Hringar
Höfundur Linda Hrönn Þórisdóttir 1999