Höfundur Guðbjörg Sigurðardóttir 1999
Verkefni unnin í Kid-pix studio


Kid-pix er fjölhæft forrit fyrir alla aldurshópa. Forritið er aðgengilegt og einfalt í notkun. Öllum aðgerðum er lýst á myndrænan háttt svo að lestrarkunnátta er ekki nauðsyn til þess að nýta sér forritið. Í forritinu eru sex mismunandi möguleikar í boði, teiknispjald, hreyfimyndir, strengjabrúður, hreyfistimplar, furðusjónvarp og myndsýning

Verkefni 1

Myndir í tölvum tengdar ljóðum og ljóðagerð á leikskólum
 
  Sýnishorn

Ljóð:

  Sýnishorn

Ljóð:

Fjölskylda mín

Ég á fjölskyldu
Sem er hjarthlý
Er til staðar ef á þarf að halda
Skilningsrík í blíðu og stríðu
Þannig er fjölskylda mín.

Forrit: ,,Kid-pix"

Viðeigandi aldur: 5 til 6 ára, eldri börnin á leikskólanum

Tengist öðru starfi í leikskólanum: Vinna í hópastarfi

Stærð hópsins: 2-4 í hóp

Undirbúningur: Í eina til tvær vikur á leikskólanum kynnt börnum fyrir ljóðum, hvað eru ljóð, mismunandi ljóðagerðir, ljóð þekktra ljóðahöfunda. Lesin væri ljóð fyrir þau.

Framkvæmd: Í tengslum við ljóð, myndu börnin mega semja stutt ljóð um eitthvað sem þau hefðu áhuga á , fyndist skemmtilegt eða fallegt. Leikskólakennarinn myndi skrifa niður ljóðin. Eftir það að vinna í Kid-pix mynd sem tengdist ljóðinu. Þau fengu að teikna mynd sem þau töldu að samsvaraði ljóðinu. Einnig væri hægt að lesa upp fyrir börnin þekkt ljóð og börnin fengu að teikna frjálst hvað þeim fannst áhugavert í ljóðinu.

Áframhald að verkefninu: Leikskólakennarnir myndu prenta hvert ljóð fyrir sig á blað. Myndirnar gerðar í tölvu eftir hvert barn yrðu merktar með nafni barnsins. Undir hverri mynd yrði ljóðið eftir barnið. Hengt upp á vegg á deildinni . yrði þar með sýnilegt fyrir foreldrunum vinna barnanna. Jafnvel að leikskólakennarar gerðu stutta skráningu sem sýndi ferli barnanna við að semja ljóðin og vinna að myndinni í tölvu.

Námsþættir sem myndu örvast hjá barninu: Sköpunargáfa. Að tjá hugsun sína og einnig tilfinningar í ljóðagerð. Málnotkun myndi örvast. Samtvinna einnig ritmál og myndsköpun.

Verkefni 2

Forrit: Kid-pix

Viðeigandi aldur: 2-6 ára

Tengist öðru starfi leikskólans: vettvangsferð og samverustund

Stærð hópsins: 5 til 10 í hóp

Undirbúningur: Lesin saga um fjörur í samverustund. Rætt við börnin hvað þeim finnist skemmtilegt að gera í fjörunni

Framkvæmd: Leikskólakennarar fara með börnin í fjöruna. Stuðlað að því að sýna þeim margt í fjörunni. Til að mynda ýmis smádýr, hjálpast að finna hvað þau heita öll, tína skeljar. Skoða gróðurinn. Þegar heim væri komið væri einn liður í að framkvæma eftirvinnu að börnin ynnu í tölvunni við að gera myndir sem skýrðu frá því hvað þeim fannst áhugaverðast í fjörunni.

Áframhald: Þegar öll börnin væru búin með myndirnar sínar, myndi hvert barn í samverustund skýra frá mynd sinni.

Námsþættir sem myndu örvast hjá barninu: Sköpun og að tjá orð á hugsun í tengslum við að ræða um myndirnar. Hreyfiþroski , vera út í nátturunni að hreyfa sig. Fínhreyfingar við að vinna í tölvunni. Félagsþroski: börnin í tengslum við hvort annað í fjörunni og að hlusta á hvort annað þegar ræða væri saman myndirnar.

Sýnishorn

Af mynd úr fjörunni

(krossfiskar áhugaverðir)