Höfundur Anna  Björg Thorsteinsson 1999


Þetta er hún Eva. Sagan er um hana, hún er að horfa út um gluggan á Tóta vin sinn og langar til hans.Tóti er úti í garði og nú er Eva búin að setja slaufu í hárið á sér og veifar til hans og vonar að hann kalli á hana til að koma út að leika.

Tóti veifar til hennar á móti en hleypur svo í burtu. Þá fór Eva að gráta.

En Tóti kom aftur og kallaði á Evu og bauð henni með sér að róla. Þá hætti hún að gráta og varð glöð.

 

 

Nú er Eva farin úr glugganum og komin út að leika sér við Tóta.

Það er líka komið kvöld og mamma hennar er að kalla á hana inn í kvöldmat. Það er búið að draga fyrir gluggann á herbergi Evu.


Þetta var saga telpna 5 ára og 7 ára unnar með Kidpix teiknihugbúnaðarpakkanum.

Hér að neðan koma hugmyndir af fleiru skemmtilegu unnið í þessu sama forriti. Þá koma stimpilmyndir með hreyfingu en möguleikar kidpix forrits eru ótrúlega miklir. Hér eru notaðir stimplar aðeins úr jurtaríkinu. Nú er búið að bæta við blómaramma utan um myndina. Síðan er hægt að flytja þessar myndir í kidpix yfir í ramma og fá inn á myndina fljúgandi fugla, fiðrildi og fleira en það er ekki hægt hér því að word forritið getur ekki flutt þær á þessa síðu og enn síður vistað þær hér. Sennilega er það þó hægt en mér tókst það ekki í bili.

Vinna á leikskólum með börnum og kidpix Hugmyndir

 Sem tillögur um að vinna með börnum í kidpix getur verið gaman að velja þema ásamt börnunum og vinna út frá því. Til dæmis ef þema valið er skip. Þá má vinna með skip á marga vegu. Þá væri gott að gera það í moopies skránni, því er hægt að nota alltaf sama skipið með mismunandi bakgrunn. Bakgrunnurinn geta verið hafnir í ýmsum löndum. Ef skipið er statt í París t.d. þá kemur Effelturninn inn á myndina. Kaupmannahöfn þá litla hafmeyjan o.s.frv. Annað sem hægt væri að vinna með er fjölleikahús. Þar gæti verið betra að vinna aðeins með eitt dýr t.d. apa og fylgjast með honum gera listir sínar fyrir áhorfendur. Áður en að vinnan hefst er gott að vera búin að kynna vel fyrir börnunum allt um skip eða apa. Svo þegar verkunum er lokið þá má setja upp "slideshow" myndasýningu sem er eitt forrit í kidpix pakkanum. Þá birtast myndirnar á skerminum í þeirri röð sem börnin ákveða fyrirfram. Með forritinu eru ótal mörg hljóð sem hægt er að setja við myndirnar, þar á meðal margskonar draugahljóð, geimveruhljóð, dýra, -barnagráts, -bíla og flugvélahljóð svo eitthvað sé nefnt. Einnig geta börnin sjálf talað inn á myndirnar gegnum hljóðnema. Hægt er að setja ljósmyndir inn á kidpix forritið og leyfa börnunum að teikna inn á myndina t.d. ef mynd er af stelpu í buxum og peysu þá má breyta fötunum, hárinu og fl. með því að teikna inn á myndina.