Hér koma nokkrar hugmyndir
um það hvernig hægt er að fá börn til að
vinna með teikniforritið Kid Pix
Hugmynd 1.
Börn hafa gaman af því að syngja og heyra vísur, það gæti því verið skemmtilegt að fá þau til að teikna sína upplifun af ákveðnu ljóði eða ákveðinni vísu. Í upphafi væri hægt að syngja vísuna með þeim eða flytja ljóðið fyrir þau og fá þau svo til þess að tjá upplifunina í Kid Pix. Ég valdi að teikna vísuna Dansi dansi dúkkan mín úr Vísnabókinni.
Hugmynd 2.
Andstæður eru skemmtilegt viðfangsefni sem býður upp á marga möguleika. Það gæti verið skemmtilegt að fá börn til þess að finna út hvað eru andstæður. Það væri hægt að fá börnin til þess að teikna tvær myndir sem, væru andstæðar eða teikna eina mynd og breyta henni í andhverfu sína. Ég valdi að teikna tvær myndir, andstæðurnar heitt og kalt, ég breytti einnig stökum myndum í andstæður eins og nótt og dagur og litlaust og litríkt.
Heitt



Nótt og Dagur


Kalt
Litríkt og litlaust
Hérna eru verkefni sem unnin voru hjá Svölu Jónsdóttur myndmenntakennara
Þessa teiknimyndasögu
sömdum við Linda saman og teiknuðum, þetta er mjög
skemmtileg hugmynd og væri gaman að gera með litlum börnum.
Hérna eru rauði karlinn og græni
karlinn. Rauði karlinná heima á efri hæðinni
í þessu umferðarljósi og græni karlinn á
neðri hæðinni.
Rauði karlinn var í vondu skapi.
Börnin hlupu alltaf yfir götuna án þess að stoppa
og bílarnir voru næstum búin
að keyra á þau.
Rauði karlinn ákvað því
að fara og tala við börnin. Hann vonaði að þannig
gæti hann kennt börnunum umferðarreglurnar
Rauði karlinn fór til barna sem
ætluðu að hlaupa yfir götuna. Hann sagði þeim
að göturnar væru hættulegar og bílarnir gætu
keyrt á þau. Börnin ættu að stoppa þegar
hann væri í ljósinu en þau mættu fara yfir
þegar græni karlinn væri kominn í ljósið.
Börnin þökkuðu rauða
karlinum fyrir og fóru að gangbrautinni. Þar biðu
þau þar til græni karlinn kom. Þá gengu
þau yfir götuna og vöruðu sig á bílunum
eftir það.
Nú var rauði karlinn glaður.
Hann var búinn að kenna börnunum umferðarreglurnar
og þau hlupu ekki lengur yfir götuna.
Ævintýralandið