Höfundur Ragnhildur G. Júlíusdóttir 1999
Verkefni II unnið í Kid - pix 

 

Í þessu verkefni ætla ég að vinna með andstæður eins og hvað er hollt og hvað er óhollt. Gera eina mynd og skipta henni í tvennt og teikna á hvorn helming fyrir sig þessar andstæður. Hægt væri að byrja á því að hafa umræður um hollustu og mikilvægi hennar fyrir líkama okkar og hreysti. Það væri hægt að gefa börnunum tækifæri á að standa upp ef þau vildu og segja frá hvað þeim finnst gott eða vont og sjá hvort það myndi falla inn í hollustu eða óhollustu.

Síðan væri gaman að biðja þau um að teikna á tölvu eða blað og jafnvel að vinna í hugmyndirnar í leir. Hægt væri að nota marga liti og gera þetta svolítið skrautlegt. Þegar búið væri að full vinna þetta væri hægt að klippa þetta út og líma á veggspjald svo að foreldrar og aðrir gætu séð afrakstur vinnunar. Þetta verkefni væri hægt að vinna með áfram og fjalla um mikilvægi tannhirðu og þar gætu hinir víðfrægu Karíus og Baktus komið við sögu. Þarna væri komun vísir að einu verkefni enn sem hægt væri að vinna með börnum á tölvu t.d. með því að teikna þessa skrýtnu og sætu karla. Þetta verkefni gæti alveg fallið inn í hollustuna en væri líka alveg ágætt eitt og sér.


 


 

Höfundur Ragnhildur G. Júlíusdóttir 1999