Hér eru nokkrar
hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með teikniforritið
Kid pix
Verkefni 1.
Í þessu verkefni hafði ég
hugsað mér að vinna með hafið sem þema. Þannig
að ég gæti verið búin að fara með börnin
í fjöruferðir og kynna fyrir þeim ýmis lög
og vísur um hafðið. Þegar þau færu að
vinna þetta verkefni myndi ég byrja á því
að fara með lagið hafið bláa hafið og láta
þau síðan sjálf útfæra það.
Þannig að myndirnar myndu án efa vera mjög ólíkar.
Gaman værir að sjá mismunandi útgáfur af
myndum hjá börnunum, en útkoma færir fyrst og
fremst eftir aldrir og fyrri reynslu af viðfangsefninu.
Verkefni 2.
Í þessu verkefni hafði ég
hugsað mér að taka fyrir andstæður. Þannig
að börnin fengju að vinna með tvö efni sem væru
algjörlega svart og hvítt. Þær andstæður
sem ég valdi mér var heitt og kalt þannig að börnin
þyrftu að finna út hvað tilheyrir köldu og hvað
heitu. Það værir tilvalin leið til að fá
þau til þess að velta fyrir sér ýmsum möguleikum
og komast að niðurstöðu hvað ætti heima í
hverjum hóp. Tel ég að þetta sé góð
leið til þess að tengja myndsköpun við daglega lífið
og fá börnin til að vera vakandi fyrir því
hvað hlutir tilheyra hverjum hóp fyrir sig.