![]()
Lærlingar í upplýsingatækni
6. maí 1998
Til starfshóps um upplýsingatækniátak
frá Salvöru Gissurardóttur lektorTILLAGA UM 2.ÁRA TILRAUNAVERKEFNI
LÆRLINGAR Í UPPLÝSINGATÆKNI
Ég sting upp á því að strax í byrjun næsta skólaárs verði nemendum í námi við KHÍ og hugsanlega líka í tengdu námi í öðrum skólastofnunum boðið að taka þátt í nýrri tegund af starfsþjálfun sem sérstaklega verði sett upp fyrir þetta verkefni og meðfram henni eða eftir þá þjálfun gefist þeim kostur á launaðri vinnu (í hlutastarfi 5-20 tíma á viku) við ýmis konar stoðþjónustu og/eða innan deilda í KHÍ. Þátttakendur í þessarri starfsþjálfun fái hana metna til eininga í námi.
Ég hef í huga að t.d. 30 manna hópur geti byrjað í ársbyrjun 1999 og annar hópur þegar prófum lýkur í maí 1999 og starfi um sumarið.
MARKMIÐ
Markmiðið með þessu átaki væri þríþætt (talið upp eftir mikilvægi):
* bæta úr brýnni þörf fyrir starfskrafta innan KHÍ sem hafa bæði tæknilegan og kennslufræðilegan bakgrunn, gera slík störf eftirsóknarverð
* prófa nýja tækni við þjálfun nýliða í störfum - prófa nýja tegund af kennsluháttum
* þjálfa tilvonandi kennara og starfsfólk skóla í að vera frumkvöðlar í upplýsingatækni og hafa umsjón með tölvumálum í skólum
VIÐFANGSEFNI
Upplýsingatæknilærlingar á bókasafni, gagnasmiðju, kerfisþjónustu, menntaneti, endurmenntun, framhaldsdeild, skrifstofu, rannsóknarstofnun, lestrarmiðstöð, kennslumiðstöð o.fl. og í verkefnum hjá einstökum kennurum. Þeir sjá um uppsetningar á forritum, vefsíðugerð, þjónustu og aðstoð, prófun og aðlögun að ýmsum fjarkennslutækjum og tækni, innslátt og allt sem lýtur að því að gera stoðþjónustu sjálfvirkari og óháðari stund og stað, stuðning við kennara KHÍ sem eru að prófa nýja tækni o.fl.
STARFSÞJÁLFUN
Byggt um yfir eitt misseri í senn.
Í byrjun sett upp námskeið t.d. 20 kennslustundir með verklegum æfingum og fyrirlestum. síðan starfsþjálfum á viðkomandi stað/deild (gert er ráð fyrir að sami lærlingur sé allt misserið hjá sama stað). Gert ráð fyrir að það þurfi marga utanaðkomandi fyrirlesara/kennara (t.d. í unix, java, uppsetningu netþjóna...) í efnum sem ekki er færni fyrir í KHÍ.
Gert ráð fyrir formlegri þjálfun t.d. aðra hverja viku 2-4 tímar í einu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur haldi dagbók um hvernig þeim gengur.
KOSTNAÐARLIÐIR
Það þarf að ráða einhvern umsjónaraðila með slíku átaki t.d. 20% af starfi háskólakennara
Það þarf að greiða kennslukostnað (taxti háskólakennara)
Það þarf að greiða kaup þátttakenda (ferlega lágt kaup), hugsanlega er hægt að sækja í nýsköpunarsjóð f. næsta sumar.
Gerð er tillaga um að til þessa viðfangsefnis verði veitt kr. 4.000 þús á árinu 1999 og þar af séu 2.500 þús í tengslum við grunnnám og 2.000 í tengslum við framhaldsnám og endurmenntun.