Reykjavík, 18. ágúst 1998,

Umsögn um B.Ed. ritgerð vorið 1998

Tölva var það heillin!

Könnun á tölvunotkun grunnskólakennara

Höfundar ritgerðar eru Arna Heiðmar Guðmundsdóttir og Árný Hulda Friðriksdóttir

Prófdómari ritgerðar var Guðrún Geirsdóttir.

Leiðsagnarkennari við ritgerðasmíð var Salvör Gissurardóttir.

Ritgerðin byggir á viðamikilli könnun sem höfundar gerðu í desember 1997 og fjallar um tölvunotkun grunnskólakennara í Reykjavík. Höfundar sendu út spurningalista til kennara í marga grunnskóla og unnu úr niðurstöðum úr 247 spurningalistum þar sem skoðað var hvort og þá hvernig kennarar nota tölvur og Netið í kennslu og hver áhugi kennara er á tölvunotkun. Einnig veltu höfundar upp hugmyndum um framtíðarnotkun tölva í skólastarfi.

Höfundar hafa lagt mikla vinnu og metnað í framkvæmd könnunar og úrvinnslu, spurningalisti er vel unninn og faglega staðið að framkvæmd könnunar. Höfundar safna með þessari vinnu saman nýrri þekkingu og bæta mikilsverðum upplýsingum við það sem aðrar athuganir hafa sýnt. Höfundar fóru einnig nýstárlega braut í úrvinnslu þar sem þeir efndu til samstarfs við nemendur í forritun í öðrum skóla sem þurftu á raunhæfu verkefni að halda við forritun í Delphi. Það metnaðarfulla ferli sem höfundar fóru í gegnum við framkvæmd könnunarinnar er óbeint sýnilegt í rigerðinni, annars vegar í ágætri lýsingu höfunda á vinnu við könnunina og fylgiskjölum henni tengdri og hins vegar í einfaldri og auðskiljanlegri framsetningu á tölulegum niðurstöðum. Styrkur ritgerðarinnar liggur fyrst og fremst í hve skýrt þær niðurstöður eru settar fram og hve mikla vinnu þær endurspegla.

Rannsóknarspurningar eru skýrt afmarkaðar og settar fram í upphafi ritgerðar. Höfundar gefa stutt yfirlit yfir tölvukost skóla og vísa í aðalnámskrá. Myndræn útfærsla á niðurstöðum könnunar er skýr en umfjöllun og túlkun einstkara niðurstaðna er afar varfærin. Samantekt úr könnun sett fram í lokin en bætir litlu við fyrri umfjöllun. Þetta er ágæt og viðamikil könnun og myndræn útfærsla er góð en umfjöllun um niðurstöður er lítil og ekki sérlega gagnrýnin.

Allt yfirbragð ritgerðarinnar er einfalt og fjörlegt, höfundar hafa lagt mikla vinnu í að útskýra fremur torskildar tölulegar upplýsingar með stöplaritum og kökuritum og umfjöllun í texta. Þessi ritgerð og þær niðurstöður sem í henni birtast bæta töluverðum nýjum upplýsingum við um hvernig grunnskólakennarar séu í stakk búnir til að taka í notkun nýja tækni og hve stór hluti þeirra hefur hana þegar á valdi sínu. Þessi ritgerð ber einnig með sér að höfundar hafa lagt á sig langt og strangt vinnu- og námsferli og hafa tök á að beita ýmis konar verkfærum og samstarfi við söfnun og umbreytingu upplýsinga.

 

Reykjavík, 18. ágúst 1998,

Salvör Gissurardóttir

lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun við Kennaraháskóla Íslands