Upplýsingasamfélagið - Vinnumarkaður ATVINNA Í BOÐI 1998
![]()
Greining á hvernig störf bjóðast núna á íslenskum vinnumarkaði
og hvers konar færni er leitað eftir hjá væntanlegum starfsmönnumHvað á að skoða?Hvernig eiga starfsmenn á Íslandi að vera árið 1998? Hvaða eiginleikar og færni er eftirsótt á vinnumarkaði? Þegar leitað er svara við þessum spurningum má fara margar leiðir. Það er hægt að spyrja atvinnurekendur og ráðningarskrifstofur hvaða eiginleikum og færni þeir leiti eftir hjá atvinnuumsækjendum og það má skoða hvað einkennir þá hópa sem fá ekki vinnu. Þó við höfum ekki tök á að gera viðamiklar úttektir og kannanir þá getum við í daglega lífinu verið vakandi fyrir þeim teiknum sem eru á lofti um breytingar á atvinnuháttum.
Efst á síðu
Atvinnuauglýsingar - mælikvarði á hvers konar færni er eftirsóttEitt af því sem við getum gert er að skoða atvinnuauglýsingar dagblaða og þar getum við reynt að lesa milli línanna. Í auglýsingum er oftast lýsing á eiginleikum sem óskastarfsmaður þyrfti að hafa og svo fylgir oft lýsing á starfinu. Einnig færist í vöxt að þar sé með stutt lýsing á fyrirtæki eða stofnun. Þess vegna eru atvinnuauglýsingar einn af þeim mælikvörðum sem við getum notað á hvernig vinnumarkaðurinn er núna. Atvinnuauglýsingar endurspegla líka þann geira atvinnulífsins sem er á mestri hreyfingu, þar sem vöxturinn er mestur eru ný störf auglýst og þar sem starfsfólk staldrar stutt við í vinnu er oft auglýst eftir fólki.
Efst á síðuGreining á atvinnuauglýsingum Morgunblaðsins einn sunnudag
Langflestar atvinnuauglýsingar eru birtar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Hér fer á eftir samantekt og úrvinnsla úr atvinnuauglýsingum í Morgunblaðinu sunnudaginn 18. október 1998. Þennan dag voru auglýst yfir 100 laus störf hjá ýmsum aðilum. Flestar auglýsingar voru frá tiltölulega stórum og þekktum fyrirtækjum eða stofnunum. Gera má ráð fyrir að smáfyrirtæki miðli upplýsingum um laus störf eftir öðrum leiðum. Skoðað var sérstaklega hvernig auglýsendur lýstu óskastarfsmanni og hvaða eiginleika eða færni þeir tiltóku í auglýsingum og hvernig störfum var lýst. Niðurstöður eru settar fram í þessum liðum:
- töflu yfir lýsingarorð sem komu fyrir þegar starfsmanni var lýst(eitt orð)
- töflu yfir hvernig færni og hæfileikum óskað var eftir (eitt orð)
- lista yfir færni og hæfileika með sama orðalagi og var í auglýsingum
- kafli um vinnutíma og vinnufyrirkomulag
- lista yfir hvernig starfsvettvangi er lýst með sama orðalagi og var í auglýsingum
- kafli um hvaða vísbendingar um vinnumarkað þessi greining gefur
Athuga þarf að hér er aðeins upptalning á þeim færniþáttum sem nefndir eru í auglýsingunum en ekki er nein úttekt á því hversu oft þeir komu fyrir eða hversu mikilvægir þeir virtust við val á starfmanni. Einnig er ekki gerður greinarmunur á hvernig störfum var auglýst eftir og ekki teknir með færniþættir sem voru sérstakir fyrir þá tegund starfs sem auglýst var eftir. Einnig voru ekki teknir sérstaklega með þættir eins og aldur og kyn þar sem þeir komu ekki oft fyrir í auglýsingum. Í þremur auglýsingum var tilgreindur æskilegur lágmarksaldur (18, 25 og 40 ára) og í einni auglýsingu sagt að starfið henti vel konum á aldrinum 30-70 ára.
Orðalag í auglýsingum var mismunandi og eiginleikar eins og þjónustulund og samstarfshæfileikar voru oft nefnd með mismunandi orðalagi en í úrvinnslu var einungis haft með eitt orðalag fyrir hverja tegund af færni.
Efst á síðu1. Hvernig er óskastarfsmanni lýst:
agaður alúðlegur áhugasamur ákveðinn áreiðanlegur áræðinn drífandi duglegur dugmikill heiðarlegur hugmyndaríkur jákvæður kraftmikill lifandi lipur metnaðarfullur nákvæmur reyklaus reynsluríkur röskur samstarfsfús samviskusamur sjálfstæður skipulagður snyrtilegur traustur vinnusamur þjónustuglaður Efst á síðu2. Hvers konar færni og hæfileikum er óskað eftir hjá tilvonandi starfsmönnum:
menntun réttindi fagþekking reynsla málakunnátta tölvukunnátta frumkvæði sjálfstæð vinnubrögð nákvæmni metnaður samstarfshæfileikar þægileg framkoma kappsemi vinnugleði skipulagshæfileikar góður talandi nýjungagirni fordómaleysi samningatækni hæfni til miðlunar þjónustulund gott lundarfar framtaksemi óflekkað mannorð Efst á síðu3. Orðalag í auglýsingum yfir færni og hæfileika sem sóst var eftir:
- hafa viðeigandi menntun,réttindi og fagþekkingu
- búa yfir góðri tungumálakunnáttu
- hafa alhliða og góða tölvukunnáttu
- geta unnið sjálfstætt og tamið sér nákvæm vinnubrögð
- hafa frumkvæði, faglegan metnað og þægilega framkomu
- hafa góða samstarfshæfileika og færni til að skipuleggja og framkvæma flókin verkefni
- hafa yfirgripsmikla þekkingu og reynslu og hæfileika til að miðla sinni þekkingu
- vera tilbúnir að leggja mikið á sig til að ná árangri
- vilja taka þátt í þróun nýjunga
- geta unnið undir álagi
- hafa áhuga á samskiptum við erlenda menningarheima og vilja læra af öðrum
- hafa alúðlega framkomu og ánægju af að aðstoða og upplýsa fólk
- eiga auðvelt með að vinna í hóp
- hafa reynslu af félagsmálastörfum
- hafa jákvætt viðmót og gott lundarfar
- hafa góðan talanda
- hafa gott vald á samningatækni
- hafa þjónustulund og þekkja mikilvægi góðrar þjónustu
- bera gott skynbragð á þarfir viðskiptavina
- hafa hreint sakavottorð
4. Um vinnutíma og vinnufyrirkomulag
Ekki var oft getið um óhefðbundinn vinnutíma og óhefðbundið starfsfyrirkomulag svo sem fjarvinnslu eða verktakavinnu. Nokkur störf eru auglýst sem hlutastörf og í einstaka auglýsingu var tekið fram að vinnutími væri sveigjanlegur og starfstími og starfshlutfall eftir samkomulagi eða að ýmsir vaktavinnumöguleikar í boði. Það var stundum auglýst kvöld- eða næturvinna. Einnig er í einni auglýsingu tekið fram að starfsmaðurinn þurfi að vera á bakvakt á laugardögum og í annarri að starfinu fylgdi ferlisvaktaskylda.
Nokkrum sinnum voru auglýst afleysingastörf eða tímabundin störf með möguleika á framlengingu. Sjaldan voru gefnar upplýsingar um launakjör eða launafyrirkomulag en í einni auglýsingu var tekið fram að starfinu fylgdi árangurstengdar bónusgreiðslur og í annarri að unnið væri eftir fastlaunakerfi og/eða bónusum fyrir góðan árangur. Í einni auglýsingu var tiltekið að möguleiki væri á ferliverkasamningi og í annarri að möguleiki væri á sjálfstæðri starfsemi hluta dags.
Efst á síðu
5. Lýsing á starfi og starfsvettvangiHér er listi yfir hvernig starfsvettvangi var lýst í auglýsingum en ekki voru tekin með atriði sem voru sérstök fyrir einstök störf.
![]()
![]()
![]()
![]()
- mótun á…
- umsjón með...
- samskipti við …
- meðhöndlun á...
- fylgjast með...
- sjá um...
- hönnun og uppbyggingu á…
- þróun nýjunga á..
- skipulagning, stjórnun og ábyrgð á…
- athugun og mat á...
- fylgjast með hvenær…
- geta metið ástand…
- annast kynningu á...
- annast utanumhald vöruflokks
- vöruþróun.....
- taka þátt í uppbyggingu á...
- uppsetning og bilanagreining...
- stefnumótun og markmiðasetning..
- viðhald og eftirlit…
- sala, hönnun og tilboðsgerð......
- þjónusta við notendur..
- samskipti við birgja og viðskiptavini..
- ráðgjöf til viðskiptavina....
- greining á þörfum..
- stuðningur við...
- miðlun upplýsinga...
- gerð áætlana og eftirlit með framkvæmd..
- samræming og samhæfing á..
Efst á síðu
6. Vísbendingar um vinnumarkað
Hvað sýnir þessi greining á atvinnuauglýsingum? Hún bendir til að störf sem eru í boði í dag á íslenskum vinnumarkaði kalli á færni og hæfileika sem einkenna samfélag sem breytist hratt úr veiðimanna- og iðnaðarsamfélagi í upplýsingasamfélag. Embættismenn og starfsmenn í einkafyrirtækjum þurfa að temja sér nýjan hugsunarhátt sem byggir á þjónustu við viðskiptavini. Starfsmenn í dag þurfa í ríkari mæli að geta unnið sjálfstætt og skipulagt sitt eigið vinnuferli og haft snurðulaus samskipti við aðra. Þeir þurfa að geta tekið ákvarðanir og framkvæmt þær þó að sumir þættir séu óljósir og óvissir. Starfsmenn þurfa að kunna flókin vinnubrögð og geta fylgt án eftirlits reglum eða ramma sem fylgir viðkomandi starfi. Próf, réttindi eða vottorð eru notuð sem mælikvarði á fagkunnáttu eða eiginleika. Þannig eru vinnuvélaréttindi mælikvarði á hæfi til að stýra vinnuvélum og sakavottorð mælikvarði á heiðarleika. Tölvuþekking og málakunnátta eru nauðsynleg fyrir mörg störf.
Þessi greining sýnir líka að á vinnumarkaði er sóst eftir færni sem ekki er kennd í skólum nema ef vera kynni á óbeinan og dulinn hátt. Þó líklegt að sú dulda námskrá sem þannig er núna innbyggð í skólastarfið rækti ekki þá eiginleika sem nú er sóst eftir á vinnumarkaði heldur taki mið af þörfum iðnaðarsamfélags. Spyrja má á hvern hátt eiginleikar eins og áræðni, þjónustulund og framtakssemi séu ræktaðir í skólastarfi.
Þegar dregnar eru ályktanir af þessari úttekt verður að hafa í huga að hún spannar eingöngu atvinnuauglýsingar einn sunnudag í vetrarbyrjun í einu dagblaði. Þessar auglýsingar birtast á uppgangstíma þar sem mörg ný verkefni eru sett af stað í fyrirtækjum og stofnunum. Orðalag í atvinnuauglýsingum er einnig oft staðlað og starfsvettvangi þar hugsanlega lýst á þann hátt að það laði að fleiri umsækjendur.
Einnig verður að hafa í huga að sumir eiginleikar eða færni þykir svo sjálfsögð að hún er ekki nefnd í auglýsingum. Þannig er afar sjaldan nefnd í auglýsingum atriði eins og góð almenn menntun en það kann að vera vegna þess að mörg störf krefjast langskólanáms þar sem fyrsti hlutinn (nám í framhaldsskóla) var almennt nám. Þannig er almenn menntun óbeint skilyrði þó það sé ekki nefnt í auglýsingu.
Um þessar mundir er mjög algengt að sækjast eftir fólki sem hefur þjónustulund og á gott með að vinna með öðrum. Þetta er sennilega svo algengt nú vegna þess að vinnumarkaðurinn breytist mjög hratt um þessar mundir hvað varðar viðhorf til þessara eiginleika og ekki nema hluti af fólki á íslenskum vinnumarkaði hefur þessa eiginleika eða lítur svo á að þeir séu hluti af færni sinni í starfi. Sama á við um tölvukunnáttu. Eftir einhverja áratugi verður ástandið hugsanlega þannig á íslenskum vinnumarkaði að þjónustulund, samskiptahæfni og tölvukunnátta verða svo samofin öllum störfum og svo sjálfsagður hluti af almennri færni til starfa að þeirra verður ekki getið í starfsauglýsingum.
Efst á síðuAtvinna í Boði 1998 eftir Salvöru GissurardóttirSalvör Gissurardóttir 30.10.98
Hluti af vef um Upplýsingasamfélagið - Vinnumarkaður
Vefslóð: http://www.ismennt.is/vefir/ari/samfelag
Heimild: Atvinnuauglýsingar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 18. október 1998, blað F bls.2-13