KHÍ stofa M-201

Fjórir skólar sameinaðir í einn háskóla með 1200 stúdenta

Myndir frá hátíðarhöldum

Við áramót 1997-1998 sameinast Fósturskóli Íslands, Íþróttakennaraskóli Íslands, Kennaraháskóli Íslands og Þroskaþjálfaskóli Íslands í einn háskóla.

Nafn hins sameinaða skóla verður Kennaraháskóli Íslands.

Í hinum nýja háskóla verða alls um 1200 stúdentar fyrir utan umfangsmikið starf á sviði endurmenntunar. Úr Kennaraháskóla Íslands koma um 720, úr Fósturskóla Íslands um 300, úr Íþróttakennaraskóla Íslands um 65 og úr Þroskaþjálfaskóla Íslands um 90 stúdentar. Starfsmenn hins nýja háskóla verða um 140.

Af þessu tilefni var fyrsti vinnudagur ársins 1998 haldinn hátíðlegur í Kennaraháskóla Íslands.

 

Salvör Gissurardóttir 2. janúar 1998