Tívolí Gyllti turninn, silfursmiðurinn og hringekjur.

Eitt skemmtilegasta tækið í Tívolí fannst öllum vera turninn þar sem allir settust í vel læsta stóla og þutu svo langt upp í loftið og niður aftur. Hjörtur var yngstur og þess vegna ekki nógu stór til að fá að fara í þetta tæki.

 

Nokkrir handverksmenn starfa í Tívolí og hérna hafa Kristín og Hjörtur fengið gert silfurhálsmen með nafninu sínu á meðan þau biðu. Grímur lét gera hálsmen með nafni móður sinnar til að gefa henni þegar hann kæmi til Íslands.

Börnin horfa á silfursmiðinn útbúa hálsmenin á einni mínútu.

Kristín í hringekju sem þeyttist í hringi.

Hér er verið að ákveða hvaða tæki eigi að prófa næst.

Kristín og Hjörtur í rólegu tæki svona til tilbreytingar.