Salvör Gissurardóttir október 1998
Vefsíðugerð í Word 97
Inngangur
Einu sinni þurfti að læra sérstakt forritunarmál sem heitir HTML til að gera vefsíður.
Núna er mögulegt að skrifa vefsíður í ýmsum ritlum og ritvinnslukerfum sem sýna vefsíðurnar eins og þær líta út. Þannig þarf sá sem skrifar vefsíður ekki að kunna HTML og getur einbeitt sér að inntaki og útliti síðunnar.
Fyrir byrjendur er einfaldast að skrifa vefsíður annað hvort beint í Word ritvinnslu eða að nota vefsmíðatól sem fylgja með Internet Explorer (Frontpage Express) eða Netscape (Composer eða Netscape Editor). Það er afar auðvelt að búa til vefsíður í Word 97. Einfaldasta gerð af vefsíðu er venjulegt textaskjal. Mundu að á vefnum er mikilvægt að sjá strax um hvað vefsíðan er (fyrirsögn og titill), hver stendur að henni(netfang og nafn höfundar eða stofnunar) og hversu nýlegar og nákvæmar upplýsingar á henni eru (dagsetning).
Titill eða haus á síðu |
Meginmál |
Nafn og dagsetning |
Einföld vefsíða búin til og vistuð í Word 97
Við skulum taka dæmi um hvernig þú gerir vefsíðu í Word 97.
Verkefnið er að búa til vefsíðu með fyrirsögn og titli og meginmáli sem getur verið texti og mynd. Neðst á síðunni á einnig að vera dagsetning sem segir hvenær síðunni var seinast breytt (uppfærð) og þar á einnig að vera tenging svo hægt sé að skrifa höfundi síðunnar.
Þú ferð svona að:
Opnaðu Word 97, smelltu á File og þar á New (ekki smella á hnappinn fyrir nýtt skal á tólaborðinu því þá er sjálfkrafa gert ráð fyrir að þú ætlir að gera venjulegt ritvinnsluskjal en nú vilt þú búa til vefsíðu)
Tvísmelltu nú á Blank Web Page táknmyndina til að fá fram auða nýja vefsíðu.
Skrifaðu núna fyrirsögn efst á síðuna og nokkrar setningar í meginmál. Gerðu ráð fyrir að þetta sé upptalning eða minnispunktar, þú getur látið punkt eða tölu fyrir framan með því að velja og smella á táknmyndina fyrir minnispunkta. Þú hefðir líka getað slegið inn * fremst í línu, þá hefði stjarnan breyst í minnispunkt þegar þú ýtir á vendihnapp (Enter) fyrir nýja línu. Mikilvægt er að á vefsíðum séu einhverjar upplýsingar um tilurð og samhengi. Þetta geta verið upplýsingar um hver bjó síðuna til, tölvupóstfang og hvenær síðan var búin til. Þú skalt því setja nafn þitt,dagsetningu og netfang neðst. Þú getur sett inn dagsetningu með því að velja Insert-Date and Time. Bakgrunnslit velur þú með Format-Background og með því að velja þar undir Fill Effects þá getur þú valið ýmsar gerðir bakgrunna.
Dæmi um vefsíðu þar sem er fyrirsögn, meginmál í einföldum lista og upplýsingar um hver gerir síðuna og hvenær hún var gerð:
Æfðu þig í að stækka letrið á fyrirsögninni og ef til vill breyta um leturgerð. Athugaðu að velja samt eingöngu algengar leturgerðir (t.d. Arial eða Times) svo þeir sem skoða síðuna lendi ekki í vandræðum vegna þess að þeir hafa ekki viðkomandi leturgerð á sinni tölvu.
Að vista vefsíðu
Fyrir nemendur með khi númer (nemendur í staðbundnu B.Ed. námi í KHÍ) gildir að það nægir að vista vefskjöl í www möppuna á heimasvæðinu þínu og þá er þetta komið á vefinn. Þú skalt vista eitt skjal undir nafninu index.html og er best að það sé nokkurs konar yfirlitssíða yfir vefinn þinn sem svo getur tengst í aðrar síður á heimasvæðinu þínu. Athugaðu að það má ekki hafa séríslenska bókstafi í nöfnum á vefskjölum og það mega ekki vera neinar eyður í nöfnum á vefskjölum. Endingin .html kemur sjálfkrafa. Hafðu eingöngu litla stafi í nöfnum á vefskjölum. Setjum svo að þú kallir þetta vefskjal spakmaeli.html og það sé komið í www möppuna á heimasvæðinu þínu. Þá geta allir sem hafa vefaðgang skoðað skjalið með því að slá inn slóðina: http://rvik.ismennt.is/~siggajons/spakmaeli.html fyrir notanda siggajons á menntanetinu og http://www.khi.is/~khi2312/spakmaeli.html fyrir notanda khi2312 á khí netinu.
Að flytja vefsíðu frá heimatölvu yfir á vefþjón
Fyrir nemendur í fjarnámi með verknúmer hjá menntanetinu eða annars staðar þá er best að vista vefskjöl í sérstaka möppu á harða disknum, þú getur kallað möppuna www. Ef þú hefur uppsett á tölvunni þinni Word 97 Web Authoring tools (fæst á vefslóðinni: Web Documents Toolkit for Word ) þá getur þú í Word sent vefskjöl beint út á heimasvæðið þitt hjá menntaneti eða khí neti. Hér eru leiðbeiningar um hvernig þú ferð að því. Ef þú hefur hins vegar ekki veftól uppsett í Word þá þarftu að nota eitthvert annað forrit til að flytja vefskjöl frá tölvunni heima inn á heimasvæðið þitt hjá menntanetinu. Það er auðvelt að gera með Ws-ftp forritinu eða með því að taka vefskjal inn í Netscape Composer og flytja þar með Publish skipuninni. Þú getur sótt Ws-ftp forritið hjá www.simnet.is. Ég hef sett á vefinn leiðbeiningar um Ws-ftp og leiðbeiningar um Publish.
Að skoða vefsíðu
Þú skalt athuga að á heimasvæðinu þínu á vefþjóni khi eða ismennt þá er á heimasvæðum notenda sérstök mappa sem heitir www en í henni eru geymt vefskjöl. Ef í þeirri möppu er skjal með nafninu index.html eða Welcome.html þá eru opnast þau skjöl fyrst þegar komið er á svæðið. Slóðin að heimasíðunni þinni verður þá:
http://www.khi.is/~ khi2312 fyrir notanda á khí neti með notendanafn khi2312
Að setja titil á vefsíðu
Veldu File->Properties og sláðu inn í Title gluggann einhvern texta á íslensku sem lýsir um hvað vefsíðan þín fjallar. Það er mikilvægt að velja hnitmiðaðan titil sem lýsir vel um hvað vefsíðan fjallar. Ef einhver setur bókamerki (bookmark eða favorites) á síðuna þína hjá sér þá er það þessi titill sem kemur fram.