Smahaus.gif (733 bytes) Smatitil.gif (1006 bytes)
Kerla.gif (6896 bytes)

Forsíða 
Vefleiðangur

Stirni.gif (88 bytes) Kynning
Stirni.gif (88 bytes) Bókalistar
Stirni.gif (88 bytes) Höfundar
Stirni.gif (88 bytes) Kennslu-
    hugmyndir

Stirni.gif (88 bytes) Heimildir
Stirni.gif (88 bytes) Námskeið

Meðmæli með bók

Kynning | Verkefni | Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða

Kynning

Margt bendir til þess að nú um stundir fari bóklestur minnkandi. Breyttar tómstundavenjur á heimilum eiga vafalaust sinn þátt í því þar sem myndmiðlarnir eru í auknum mæli notaðir til afþreyingar á kostnað bóka. Margir halda því fram að skólarnir verði að taka við því hlutverki heimilanna að ala börn upp við að lesa bókmenntir sér til ánægju og lífsfyllingar. Að öðrum kosti muni færri og færri börn kunna það. Hvort sem við erum sammála þessu eða ekki þá skulum við í þessu verkefni setja okkur það markmið að vekja athygli á góðum bókum með það í huga að bóklestur er skemmtileg afþreying og gefandi iðja.


Verkefni

Þú þarft að velja bók sem þér finnst líklegt að veki áhuga barna eða unglinga. Gott er að hafa í huga ungt fólk sem þú þekkir.

Hafa þarf í huga áhugamál, umhverfi og aldur lesendahópsins. Í greinargerð um bókina sem þú velur þarf að koma fram:

  • nafn bókar og útgáfuár
  • nafn höfundar og e.t.v. 1-2 aðrar bækur eftir höfundinn sem nemendur kannast kannski við; Slíkt gæti stuðlað að því að vekja áhuga þeirra
  • stutt kynning á efni bókar þar kynntar eru aðalpersónur, sögusvið tími og söguefnið stuttlega
  • rökstuðningur fyrir vali bókar, þ.e. hvers vegna þú telur að einmitt þessi bók henti til að vekja áhuga barna eða unglinga á bóklestri.

Bjargir

Á vefnum BarnUng  er að finna lista yfir útgefnar bækur fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri. Þessi bókalisti er flokkaður eftir bókmenntagreinum, útgáfuárum og stundum eftir aldri lesenda. Hann ætti að hjálpa ykkur til að fá yfirsýn yfir útgáfu síðustu ára, og minna ykkur á góðar bækur sem þið hafið e.t.v. lesið.

Þá má benda á bókina Söguþræði. Handbók fyrir alla bóka- og barnavini eftir Önnu Margréti Birgisdóttur, útg Lindin 1993.

Þú skalt líka skoða þær upplýsingar sem til eru á Internetinu t.d. síður um barnabókahöfunda í höfundavef Máls og Menningar

Fyrirmyndir að meðmælum með bókum sem vekja áhuga má lesa á BarnUng undir Skemmtilegar bækur og Gamlar og góðar. Af fyrirmyndum má bæði læra hvernig maður vill gera sjálfur og hvernig ekki. 


Ferli

  1. Fyrsta skrefið gæti verið að rifja upp skemmtilegar bækur og höfunda sem þú þekkir og spjalla við krakka til að komast að hvernig bækur þeim finnst skemmtilegar.
  2. Annað skref að skoða bókalistana á BarnUng  eða líta í bókina Söguþræðir.
  3. Þriðja skref er að útvega sér nokkrar skemmtilegar bækur sem þér líst vel á og glugga í þær.
  4. Veldu eina bók sem þú vilt mæla með
  5. Skrifaðu meðmælin og sendu   fyrir 1. apríl 2000 sem Assignment inn á Learning Space námsrýmið og notaðu titil bókarinnar sem titil verkefnisins. (Ef þú vilt gera krækjur í aðra staði í Netinu þá get ég séð um það fyrir þig ef þú kannt það ekki. Láta mig bara vita hvar á að vera krækja. Eins er með myndir)
  6. Stefnt er að því að verkefnin verði síðan sett inn á BarnUng með leyfi þínu.

Mat

Kennarinn setur sig í stellingar ritstjóra vefsins BarnUng þegar hann metur meðmælin með bókunum. Hann hefur þá í huga  fyrst og fremst hvort lýsingin á bókinni sé nógu vel skrifuð til að standast kröfur um birtingu. Lýsingin þarf að vera skýr og röksemdir sannfærandi. 

  • Séu meðmælin með bókinni  markviss og  rökin mjög sannfærandi fær nemandinn einkunn A eða 9-10.
  • Séu meðmælin vel frambærileg en  ritstjóranum finnist að hægt væri að röstyðja valið ögn betur eða lýsa bókinni ögn nákvæmar færi nemandinn einkunn B eða 7-8.
  • Ef lýsingin á bókinni og rökin sem mæla með henni  eru þannig  að ritstjóranum finnist hún ekki líkleg til að þjóna þeim tilgangi að vekja áhuga ungmenna á bóklestri fær nemandinn einkunn C eða 5-6.
  • Finnist kennara rökstuðningurinn svo ósannfærandi að honum sýnist að tiltekin bók frekar geta fælt frá frekari bóklestri  fær nemandinn falleinkunn og verður að gera aðra tilraun.

Niðurstaða

Í daglega lífinu lesum við bókmenntir fyrst og fremst okkur til ánægju. Kanadíski bókmenntafræðingurinn Perry Nodelman heldur því fram í bók sinni The Pleasure of Childrens Literature (1992) að í skólastarfi eigi að taka mið af þessu og megimarkmiðið sé að kenna nemendum að njóta bóklestrar. Nánar er hægt að lesa um þetta í  smá pistli um hugmyndir Nodelman.

Meðmæli ykkar verða sett á vefinn BarnUng sem liður í að byggja upp gagnabrunn um barna- og unglingabókmenntir á íslensku á Netinu.
Þið eigið höfundarréttinn á textum ykkar og ekkert verður sett á vefinn nema með ykkar leyfi. Þið getið líka sjálf ákveðið hversu lengi efnið ykkar má vera á BarnUng.


Þessi vefleiðangur er saminn 22. febrúar 2000 fyrir fjarnámskeið í grunnskólaskor KHÍ og er lítillega breytt útfærsla af vefleiðangrinum Skemmtileg bók fyrir bekkinn minn frá 1998
Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.

Smastrik.GIF (161 bytes) Botn.gif (648 bytes)