![]() |
![]() |
||
![]() |
|||
©Fanney
Halldórsdóttir Eyrun
á veggjunum
Eyrun
á veggjunum Bókin skiptist í tíu stutta og sjálfstæða
kafla sem allir segja frá einhverri reynslu sem þessi fimm ára stúlka
hefur lent í. Einungis ein persóna er nafngreind í sögunni og er það
Matti, leikfélagi stúlkunnar, hinar persónur bókarinnar bera einungis
þau venslanöfn er tengja þau stúlkunni eins og mamma, afi, systir o.s.
frv. Þetta er skemmtileg aðferð höfundar til þess að fá börnin til
þess að lifa sig inn í frásögnina. Ég tel að þannig nái börnin að
samsama sig betur við reynslusögur stúlkunnar sem margar hverja lýsa
þeim hugsunum og þeirri reynslu sem börn á þessum aldir eru að
upplifa. Ég valdi bókina einmitt vegna þess að frásögn stúlkunnar
er svo innileg og eðlileg og vegna þess að þessi saga á vel heima
inni í skólastofu hjá nemendum á yngsta stigi grunnskólans. Sagan Í
bókinni veltir þessi ábyrgðafulla stúlka upp spurningum um lífið og
tilveruna og tekst á við "stórvandamál hversdagsins";
Matti ætlar að giftast henni, hún þarf að hugsa um litla bróður,
hjálpa skúringarkonunni og bjarga fjölskyldunni frá bófunum í sjónvarpinu.
Hún hefur mikla ábyrgðartilfinningu gagnvart bróður sínum og þarf
oft að ræða alvarleg málefni við mömmu sína. Vangaveltum
og uppgötvunum barnsins eru gerð góð skil á stórskemmtilegan hátt.
Stúlkan er klók og úrræðagóð og hefur ráð undir rifi hverju.
Hnyttin tilsvör, og bráðfyndnar úrlausnir þessarar kostulegu og
framhleypnu stúlku gera þessa yndislegu frásögn hennar í senn
skemmtilega og innilega. Höfundur nálgast hér hugarheim barnsins á
einfaldan og raunsæan hátt. Lesið
um höfundinn Herdísi Egilsdóttur |
|||