|
Kynning
Bókalistar
Höfundar
Kennsluhugmyndir
Heimildir
Námskeið |
|
©Aron
Kristjánsson
nemandi í fjarskóla KHÍ, vor2000
H.C.
Andersen

| Hans
Christian Andersen,
betur þekktur sem H.C. Andersen, fæddist
1805 og dó árið 1875. Hann var danskur og fæddist í
Óðinsvéum á Fjóni í Danmörku. Faðir hans hét Hans Andersen
og móðir hans Anne Marie Andersen.
H.C.
Andersen er einn frægasti ævintýrasagnahöfundur Norðurlanda og
víðar. Hann hefur samið og gefið út heilan hafsjó af
ævintýrum auk einhverra skáldsagna, leikrita, ljóða og
ferðasagna.
Árið
1835 kom út fyrsta ævintýrasafnið eftir H.C. Andersen, Eventyr,
fortalte for Børn af H.C. Andersen.
Ævintýri hans hafa mörg hver verið þýdd yfir á íslensku.
Þetta eru ævintýri sem börn á öllum aldri hafa gaman af og auk
þess eru þau full af boðskap. Boðskapurinn nær jafnt til
fullorðna sem barna.
Boðskapur
ævintýranna gerir það að verkum að hægt er að vinna með
ævintýrin á fjölbreytilegan hátt í kennslu, þá bæði í
yngri barna kennslu og á unglingastigi.i í yngri barna kennslu og
á unglingastigi.
|

H.C. Andersen.
,,Mig dreymdi að ég væri að skrifa og bókstafirnir kveiktu eld
í pappírnum.”

H.C. Andersen.
,,Mig dreymdi að ég væri að skrifa og bókstafirnir kveiktu eld
í pappírnum.”
C.
|